Monday, December 28, 2009

Julenbloggen

Eg vona ad allir attu gledileg og notaleg jol. Eg thakka fyrir allar jolakvedjurnar.
En eg aetla ad byrja a byrjuninni.
Fyrir nokkrum helgum var semsagt afs hittingur. Forum i Lazertag thar sem eg skradi mig a spjold sogunnar med minum ofurslaka arangri. Minus 2000 stig takk fyrir.
Thad var samt stud. Eftir thad forum vid ut ad borda.
Ekkert merkilegt gerdist i skolanum. Naestseinasta daginn fyrir jolafri var eg allan daginn i listatima asamt ollum arunum. Af hverju eg valdi list sem valfag veit eg ekki.
Fyrstu helgina sem eg var i jolafrii skreyttum vid husid hatt og lagt. Adeins annar still yfir thessu en heima. Allt ut i glansbordum og blikkandi jolaserium. En eg er bara thakklat fyrir ad thau skreyta tha alla vega. A sunnudeginum forum vid i hadeginu ut ad borda og stad sem serhaefir sig i ostum. Voda kosy tho eg hafi latid ostana eiga sig.
Vikan for svo bara i hangs og kosyheit. Man hreinlega ekkert hvad eg gerdi.
Svo kom loksins adfangadagur. Dagurinn for ad mestu leyti i ad rulla litlum pylsum i deig og skera avexti fyrir bolluna.
Um klukkan niu var byrjad ad borda. Byrjudum rolega a snakki og thess hattar. Fyrsti forretturinn var humarsupa. Svo tok vid gums i deigi, veit ekki hvad thad heitir. Svo var annad gums i fati bordad. Sidan loksins adalretturinn sem var hestakjot. Svo sukkuladikaka i eftirrett. Eg var vel sodd eftir thetta fimm retta at, vaegast sagt.
A joladag kom vinkona hjonanna og elsti strakurinn. Um hadegid opnudum vid pakkana.Og eg var bara ansi hreint anaegd. Hjonin gafu mer goda penna af thvi eg skrifa svo mikid af brefum, geisladisk med thekktustu fronsku logunum sungin af fraegustu fronsku songvurunum, otrulega kruttleg nattfot og svo hlyja peysu af thvi mer er alltaf svo kalt. Eg var virkilega anaegd med thetta allt saman og verd ad segja ad thau hafi hitt naglann beint i hofudid. Fekk lika nokkrar gjafir ad heiman og thakka kaerlega fyrir mig.
Eftir gjafastussid bordudum vid. Ekki alveg eins svakalegt og a adfangadag. Dadyr i adalrett og rullutertur i eftirrett, eins og trjadrumbar.
Kvoldid for i ad spila nyju leiki stelpunnar i Wii og pinu kokuat, hihi.
Laugardagurinn for i alls konar erindagjordir.
Tha eignadist eg lika loksins fraenku heima a Islandi, hana Thoreyju. Storglaesileg. Innilega til hamingju med gullmolann Helga og Bjarni!
I gaer forum vid a jolamarkadinn i Lille. Bara kosyheit. Gaeddum okkur svo a djupsteiktum, hollenskum saetabollum.
I dag hitti eg nokkra afs krakka i Lille. Vid fengum okkur ad borda pizzu og lobbudum svo um. Endudum a heitu sukkuladi a kaffihusi.
Thad er adeins farid ad hlyna aftur eftir thetta mikla frost um daginn.
Jolafriid er buid ad vera mjog notalegt. Buin ad lesa helling og borda enn meira.
A morgun a min bara 18 ara afmaeli. Hef ekki hugmynd um hvad verdur gert tha. Kannski rolti eg ut i bud og kaupi mer vodkaflosku og sigarettupakka bara af thvi ad eg ma thad. Nei, grin.
Aetla ad fara ad hella mer i lestur.

Ykkar Berta

Thursday, December 24, 2009

Gledileg jol !

Eg oska ykkur ollum rosa godra jola. Bordid mikid og hafid thad notalegt!




Jolakvedja, Berta

Saturday, December 12, 2009

3 manudir

Kominn timi a eitt gott blogg.
A fostudaginn i sidustu viku var fjogurra tima fronskuprofid. Dullukennarinn var buinn ad bua til spes prof fyrir mig svo thetta var ekki svo slaemt. Thar ad auki fekk eg ad vera med ordabokina mina.
Helgin var svokollud Telethon helgi. Thannig ad um fostudagskvoldid for eg i einhverja ljosagongu sem endadi svo i salnum thar sem hullumhaeid for fram. Frakkar eru mjog hrifnir af alls kyns skrudgongum. Thad var halfgerd ludrasveit i broddi fylkingar og a eftir fylgdu litlar stelpur i glansbuningum sem donsudu i takt vid teknotonlist. Svona danssveit heitir eitthvad spes en eg man ekki hvad. Byrjar a m.
Svo var loksins komid i thennan blessada sal thar sem verid var ad selja dot og mat til styrktar Telethon. Og eg bordadi tharna i oll mal alla helgina. Thetta var nu halftomlegt enda skemmtiatridin ekki upp a marga fiska. Laugadagskvoldid var hapunkturinn; kantrykvold. Linudansarar hverfisins donsudu og eg veit ekki hvad og hvad. Hef aldrei verid hrifin af thessu fyrirbaeri hvad tha i fjora tima.
A sunnudaginn forum vid a jolamarkad adeins i burtu hedan. Forum reyndar
fyrst a einhvern frekar sodalegan, var ekki viss hvort thetta vaeri tivoli eda jolamarkadur. Komumst svo ad thvi ad vid vorum i vitlausum bae.
Svo forum vid a rettan sem var miklu meira kosy. Jolatonlist og laeti.
Hjonin keyptu thar arsbyrdir af koniaki. Eg stutadi einum kandiflos sem heitir a fronsku barbe à papa (pabbaskegg eda eitthvad svoleidis). Er thad thadan sem nafnid Barbapapa er komid a bleiku figurinni?
Um kvoldid spjalladi eg vid fjolskylduna heima sem var rosa gott og gaman.
A thridjudaginn for eg med enskuplus bekknum i leikhus a leikritid The portrait og Dorian Grey eftir Oscar Wilde. Thad for fram a ensku en leidinlegra leikrit hef eg ekki sed. Ekkert ut a soguna ad setja en thetta var bara hraedilegt. Reyndu greyin ad gera thetta fyndid en thad tokst nema orsjaldan.
I morgun var i skolanum haskolakynning. Eg for nu thott eg atti litid erindi thangad.
Svo var ad sjalfsogdu keila, 50 stig i dag.
A eftir er svo afs hittingur og thad verdur farid i lazertag og ut ad borda held eg.
Ein vika eftir af skolanum og svo jolafri.
Aetla ad segja thetta gott i bili.

Ykkar Berta

Wednesday, December 2, 2009

Svinainnyfli og nautatunga

Sidasta helgi var aldeilis skrautleg.
A fostudeginum for eg i bio med skolanum. Myndin het L'affaire Farewell, sami leikstjori og gerdi myndina Joyeux Nöel sem var einmitt synd i kringum jolin i sjonvarpinu heima 2007. Hun var soldid flokin, atti ad gerast i Kalda stridinu. Mikil politik sem for ad mestu fyrir ofan gard og nedan hja mer. Eftir myndina kom svo leikstjorinn Christian Carion og svaradi spurningum ur salnum sem var mjog ahugavert.
Beint eftir bioid for eg med nokkrum stelpum ur bekknum til Lille thvi bekkurinn var ad fara i leikhus thar. Spistum a Quick sem er franskur McDonalds. Borgin var oll i jolaljosum og jolatonlist omadi um allt. Samt finnst mer vera svo litil jolastemning i ollum.
Vid saum tvo verk sem voru samt tengd saman og med somu leikurunum, ekki einu sinni hle. Fyrra verkid het Grammaire, i thvi var medal annars gert grin af franskri stafsetningu. Seinna verkid het 29 gradur i skugga. Thetta voru svona halfgerdir farsar. Fra 1800 og eitthvad. Eg skildi voda litid soguthradinn en thetta var samt gaman.
Um laugardagsmorguninn for eg i keilu. Heil 59 stig i thetta skiptid. Er buin ad komast ad thvi ad thad er mun audveldara ad hitta ef madur er med thunga kulu. Svo eg skipti 9 minni ut fyrir 11.
Um kvoldid var svo lagt af stad med hjonunum til Abbeville eftir mikil plon til ad hjalpa trudsa ad flytja. Thetta er um tveggja tima keyrsla thangad. Eg var buin ad hugsa mer gott til glodarinnar ad hjufra mig ein aftur i og hlusta a i-podinn. En thau voru buin ad leigja sendiferdarbil svo eg sat frammi a milli theirra alla leidina. Skellti svo sveittum BigMac i mig og skoladi honum svo nidur med einum flurry, klikkar ekki. Ekkert Metro rugl herna.
Vid gistum i gomlu ibudinni hans i skitakulda.Voknudum snemma til ad klara ad flytja. I hadegismat a sunnudeginum bordudum vid nautatungu. Ekkert svaka framandi en thetta var i fyrsta skipti sem eg smakkadi hana. Mer fannst aferdin frekar kinky. Og kjotid loftkennt samt alveg bragdgott. Vorum buin um fjogur og komum heim um sex.
Eg er bara buin ad vera i skolanum thessa vikuna. Var i dag ad klara verkefnid mitt i listatima. Sem var ad thessu sinni ad breyta Mona Lisu. Eg teiknadi a hana islenska thjodbuninginn.
Fengum svo medaleinkunina okkar yfir oll fogin i gaer. Eg var med 11 sem thotti mjog gott, uppskar klapp fra bekknum og laeti.
A fostudaginn er eg ad fara i fjogurra tima fronsku prof. En eg aetla ad spyrja kennarann hvort eg megi taka med mer ordabokina mina.
Eg gleymdi ad segja fra skrytnu pylsunni i sidasta bloggi.
Vid bordum alla vega mjog mikid af alls konar pylsum herna. Eitt kvoldid spurdi konan mig hvort eg vildi eins pylsu og hun helt a i kvoldmat. Eg sagdi ja enda syndist mer thetta vera oskup venjuleg, feit pylsa. Svo thegar konan er ad elda thetta gys tha ekki upp thessi rosalegi fnykur. Thegar eg for ad skera i thetta var mer haett ad litast a blikuna, alls konar bond og drasl. Tha rann thad upp fyrir mer ad thetta voru svinagarnir og fleira i theim dur sem buid var ad troda i skinn. Eg nadi samt naestum thvi ad klara en vont var thad.
Um naestu helgi er Telethon-helgi, godgerdardaemi. Mamman og trudsi eru voda oflug i thessu. Eg mun tha lika eitthvad vera ad stussast i thessu en eg veit ekki vid hvad, thad er um helgina.
I naestu viku er Lazertag med afs.
Allt i guddy. Franskan gengur svona lala. Skil mikid en talid er verra. Er byrjud ad lesa upphatt fyrir sjalfa mig a fronsku adur en eg fer ad sofa.
Gledilegan fullveldisdag i gaer!

Ykkar Berta

Sunday, November 22, 2009

Saelt verid folkid

Nuna er min buin ad vera i ca tvo og halfan manud i Franci.
Loksins fann eg eitthvad til ad aefa. For a fyrstu frjals ithrottar aefinguna mina a fimmtudaginn fyrir rumri viku. Leist lika svona aldeilis vel a thetta.
For svo aftur i gaer og i dag. Hvad djofulsins vitleysu er eg buin ad koma mer i hugsadi eg med mer medan eg hlunkadist upp einhverja brutal brekku i morgun klukkan 10.
Gaerdagurinn var samt enn erfidari. Thjalfarinn var buin ad rada i hring alls konar grindum og dynum og doti. Svo hljop madur milljon hringi um thessa braut, var vid thad ad deyja. Tokst meira segja ad detta um einhverjar keilur fyrir framan alla. Eg mun maeta a aefingu thrisvar i viku: fimmtudag og laug. og sunnudag.
Skolinn er agaetur. Fekk 12/20 ur soguprofinu bara fyrir ad reyna adeins.
Svo tharf eg ad lesa mini-utgafu af Candide eftir sjalfan Voltaire og mer er sagt ad hun se med eindaemum leidinleg.
I ensku gerdi eg sketch med nokkrum stelpum thar sem eg var gothari.
I ithrottum er eg i keilu alveg fram ad jolum. Thad er nu meira bullid.
Fekk heil 32 stig sidast.
Eg gerdi malfraedifronskuverkefni sem var litid mal med ordabokina ad vopni. Var reyndar i thrja tima ad klara thad.
Eg er buin ad komast ad thvi ad franskan er faranlegt mal. Franskir krakkar kunna ekki einu sinni ad skrifa einfoldustu ord og thurfa oft ad spyrja kennarann.
Kagglinn atti afmaeli a fimmtudaginn svo vid forum ut ad borda i tilefni thess.
Meira hvad vid forum alltaf a flokna stada. Med alls konar tilbod og vesen.
Fekk mer pizzu.
En i kvold verdur vist almennilega haldid upp a thad herna heima med ollum herlegheitunum.
I dag for eg i bio med stelpunni a Ljosaskipti 2. Hun var betri en fyrri myndin tho thad thurfti ekki mikid til. Og a fronsku. Thad fer svo i taugarnar a mer ad thau dobbi allt, eg meina hversu sjalfhverfur er haegt ad vera. Enda vil eg meina thad ad frakkar seu soldid eftir a i humor og grini.
Eg var i enskutima a fostudaginn og vid attum ad koma med stadalimyndir um Breta.
Krakkarnir sogdu: ofurkurteisir( please, alltaf), alltaf rigning thar, tala ekki erlend tungumal, og ofurstoltir. Mer fannst thetta bara fyndid af thvi ad thetta er allt thad sem eg hugsa um Frakka.
Alltaf s'il tu plait vid ollu og alltaf merci. Og vist eg er byrjud ad gagnryna Frakka tha aetla eg ad baeta thvi vid ad their se faranlega dramatiskir og gera vesen ut af ollu.
A fostudaginn i naestu viku er svo bio med skolanum um daginn og leikhus um kvoldid.
Veit reyndar ekki hvad vid erum ad fara ad sja.
Jolin ad nalgast samt enginn stemmari i loftinu. Kvidi theim ponsu en samt ekki of.
En aetla ekki ad hafa thetta lengra i bili.

Berthildur

Tuesday, November 10, 2009

Tveir manudir og einhverjir dagar!

Litid vard ur bloggatakinu.
Sidustu vikur eru bunar ad vera heldur betur stormasamar og skrytnar.
Friid var med eindaemum leidinlegt. Gerdi ei sjitt nema ad hjalpa trudmann aftur ad flytja. Svo eftir thrjar vikur aftur af thvi hann er aftur ad fara ad skipta um ibud.
Madur er bara ordinn ad einhverjum thraeli herna. Neinei.
Um helgina var svo afs helgi. Thad var alveg hreint agaett. Mjog thaegilegt ad vita ad allir eru ad ganga i gegnum thad sama. Voru reyndar einhverjir krakkar med eitthvad vesen. Thad kryddadi thetta bara adeins.
Thad var spjallad um hvad maetti og hvad maetti ekki. Nuna eigum vid vist oll ad taka okkur a i skolanum og reyna ad gera alla heimavinnu. Og lika ad taka oll DS, sem eru 3 tima prof einu sinni i viku. A fostudaginn er eg sem sagt ad fara i 3 tima soguprof a fronsku. Og eg veit ekki baun hvad er i gangi i sogu. Aetli eg verdi ekki bara ad hella mer yfir bokina.
A morgun er svo fri ut af einhverjum fyrri heimstyrjaldar degi. En tha koma heldur ongvir krakkar i pass.
Um helgina toludum vid eitthvad afs lid. Vid aetlum ad lata reyna a thetta i viku og sja hvernig fer.
Skolinn er a sinum stad. Ekkert ad fretta thadan.
Fretti ad McDo vaeri haett. Var i barnadagbladinu sem eg les a hverjum degi.Eg var nu enginn serstakur addaandi en thad var samt alltaf gott ad vita af theim.

Ykkar Berta

Tuesday, October 27, 2009

Fri!

Eg hef akvedid ad taka askoruninni um aukin bloggskrif.
Er lika komin i fri svo eg hef fatt betra vid timann ad gera.
Thetta hefur verid svo upp og nidur herna eg held eg eigi eftir ad fa hjartaafall ef thetta heldur svona afram. Konan alltaf eitthvad thu talar svo litid, thu talar svo litid. Svo tharf lika alveg rosalega litid til ad pirra hana.
Eg er alltaf ad reyna utskyra: sorry gells eg er bara svona. Thannig ad nuna er stundum soldid vandraedalegt a milli okkar. Hvorug okkar veit hvad hun a ad segja svo annad hvort setjum vid saman i hljodi eda tolum um vedrid.
Svo eru thad tveir elstu strakarnir sem i alvorunni hafa ekki sagt stakt ord vid mig sidan eg kom. Eg veit ef eg vaeri ad fa skiptinema inn a heimilid vaeri eg adeins forvitnari um einstaklinginn. Mer finnst thetta bara donalegt.
Kallinn er oft eitthvad ad spjalla. Gerir reyndar stundum grin af mer en eg reyni ad lata thad ekki pirra mig. Vaeri allt i lagi ef thad vaeri fyndid en thad er thad sjaldnast. I gaer sagdi hann mer ad eg vaeri très sacrè. Eg vissi audvitad ekkert hvad thad thyddi og spurdi. Hann sagdi tha " haha thu skilur aldrei hvad madur er ad segja" . Vid hverju byst eiginlega madurinn? En thetta thydir vist spes eda serstakur. Svo baetti hann vid ad eg vaeri leleg ad tala en honum likar samt vel vid mig.
Svo er svo gasalega mikid af vandamalum og vesenum i fjolskyldunni. Kallinn sagdi meira segja vid mig i gaer "Thu varst nu ekkert rosalega heppin med fjolskyldu, ha"
Thetta er allt i lagi, mer finnst bara svo mikil pressa vera a mer. Svo bid eg bara eftir naesta "er allt i lagi thu talar svo litid" raedu. Eg veit ekki hvort eg eigi eftir ad lifa thad af.
Eg byrjadi i gaerkvoldi a einhverju dansnamskeidi. Thetta heitir held eg Tzigane. Eg er reyndar langyngst flestar svona 40 -50 ara. Thetta verda thrju kvold, fram a midvikudag og er mjog gaman.
Skellti svo einni mynd af nokkrum stelpunum i bekknum, ad bida eftir straeto a leid i leikfimi!
Ykkar Berta

Wednesday, October 21, 2009

Tileinkad fodur minum




Operan og salurinn

Eg sem lofadi sjalfri mer ad falla ekki i gryfju blogleysisins.
Fatt hefur drifid a daga mina, eiginlega sorglega fatt.
En balletferdin fraega var farin um tharsidustu helgi. Vid forum sem sagt med balletskola stelpunnar. Okuferdin tok um thrja tima en vid vorum i tveggja haeda luxusrutu svo thad var bara naes. Hlustadi a tonlist og svona.
Thegar komid var til Parisar bidum vid fyrir utan operuna. Rett skutumst svo i Zoru en thad var bara til ad skoda. Svo var thad syningin Giselle. Ekki amaleg skal eg segja ykkur. Og salurinn var lika svo flottur. Eg reyndi ad taka einhverjar myndir en thaer voru allar halfglatadar. Eftir syninguna var farid beint heim svo madur sa litid af borginni. En thad sem eg sa leist mer . Allir lika svo svalir og toff klaeddir. Og audvitad allt morandi i japonskum turistum.
Daginn eftir forum vid svo a sjavardyrasafn. Sem var held eg i staerstu hafnarborg landsins, byrjadi a B. Thad var agaett, svolitill beentheredonethat filingur.
Ferdin var farin med oryggisteymi trudsa. En hann vinnur stundum sem einhver sjukralidi/oryggisvordur med einhverju lidi a alls konar vidburdum. Nuna foru thau med af thvi ferdin var farin med krabbameinssjukum bornum.
Eftir samtals 10 tima i rutu um helgina var madur ordinn ansi threyttur svo thad var gott ad fara heim ad sofa.
Vikan leid svo og helgin lika og thessi vika an thess ad eitthvad merkilegt gerdist.
Nema trudsi er fluttur ut. En hann kom samt um helgina. Syndi mer medal annars sirkusdotid sitt, alls konar boltar og graejur. That var agaett thar sem eg og hinir drengirnir erum alls ekki ad bonda.
A midvikudaginn i sidustu viku atti 23 ara strakurinn afmaeli, fekk sjonvarp og laeti.
Thar sem svona litid hefur gerst aetla eg ad skella inn nokkrum athugasemdum ef svo ma ad ordi komast.

Frakkar eru med ljotar tennur. Alla vega mjog margir.
Krakkarnir a minu heimili eru samt mjog lengi ad bursta a ser tennurnar enda oll agaetlega tennt. Nota samt ekki tannthrad.

Okumennirnir herna eru med svadalegt rumskyn. Paralell parka eins og enginn se morgundagurinn og keyra svo hradd um mjoar einstefnugotur en klessa aldrei a.

Hja mer er folkid frekar umhverfisvaent. Flokka ruslid, reyndar ekki i lifraent. Fara lika alltaf med taupoka ut i bud og thyggja aldrei plastpoka.

Thau eru ekki mikid i raudvininu hja mer. Eru samt alltaf ad drekka eitthvad gutl fyrir matinn. En sjaldan med matnum nema a sunnudogum.
Thad er oft finni matur i hadeginu a tha og tekinn godur timi i ad borda.
Einu sinni fengu strakarnir ser vodkaogredbull med. Mer finnst thad nu vera soldid hardcore i hadeginu a sunnudegi.

Thetta reddast motto islendinga gildir ekki herna. Allt planad med vikufyrirvara og gert svaka vedur ut af litlum smaatridum.

Thad eru alltaf allir ad snyta ser herna og ganga um med tissjupakka.

Flestir ganga lika um um flosku af sotthreinsandi geli og lodra thessu a sig i tima og otima. Eg er meira ad segja med eina svoleidis en nota hana aldrei.

Thad reykja mjog margir krakkar herna og lika svona typur sem myndu aldrei reykja a islandi.

Thad kyssast allir tvisvar thegar their hittast. En tveir strakar taka laust i hondina a hvor odrum.

Flestar stelpur i skolanum eru med fansy veski i stad skolatosku. Eg er nu samt bara med eastpakbakpoka.

Vedrid herna er mjog skrytid. Einn daginn eru 20 gradur og naesta 12 og svo 2.
Veit aldrei hvernig eg a ad klaeda mig og er yfirleitt of kalt eda of heitt.

Thad er ekkert felagslif i skolanum enda held eg ad thad tidkist ekki i skolum i Frakklandi.

Thad glosa allir krakkar mjog snyrtilega. Med reglustikurnar a lofti og penna i ollum litum.

Eg er tvisvar buin ad fa crepes i kvoldmat og tha med sykri, sultu eda sukkuladi.
Mjog gott en soldid skrytid i kvoldmat.

Eg er aldrei buin ad fa theyttan rjoma herna og heldur ekki mjolk.
Eg er heldur ekkert spennt fyrir thvi ad drekka utlenska mjolk og hef latid thad eiga sig i gegnum arin.

Thau horfa mjog litid a sjonvarpid. Alla vega ekki a kvoldin.

Hadegismaturinn er adalmaltidin og thaer oft eitthvad kjot og med thvi. En aldrei heit sosa med.
A kvoldin eru oft eitthvad fljotlegra. Eftir matinn er svo avoxtur, jodurt, ostur eda is stundum.

Thau eru mjog hofsom herna. Yfirleitt bara eitt kjotstykki a mann, ein kokusneid , einn litill ispinni.
Andstaett thvi sem eg er von, ad troda i mig.
En thetta er agaett svona, eg er aldrei svong.

Allt i godu herna. Eftir laugardaginn naesta er eins og halfs vikna fri.
Endilega kommentid.

Ykkar Berta

Sunday, October 4, 2009

Manudur!!!!

Nu er eg ein a fotum thar sem hjonin eru uti ad erindast held eg og allir hinir sofandi. Eg akvad thvi ad skjella einu bloggi a lydinn.
Vaegast sagt undarleg vika lidin og erfid. Eg aetla ad detta adeins i klisjuna og segja ad hun verid eins og russibani, upp og nidur. Eg veit ekki alveg hvad olli thvi. Nenni heldur ekki ad fara ut i tha salma her. Thad var eiginlega ekki neitt og thad sem var erum vid buin ad leysa okkar a milli.
Skolinn gekk vel. Stundaskrain min loksins komin a hreint eftir mikid vesen.
Aetladi ad skipt ur hop b i a en svo matti eg thad ekki. Svo a midvikudaginn atti eg ad vera i listatima i sidasta tima en hann fell nidur. Nema ad enskumaelandi deildarstjorinn var ekki latinn vita og thegar konan hringdi i hann ut af stundaskranni leit ut eins og eg hafdi bara skropad. En nu er allt komid a hreint.
Sidustu dagar hafa verid mjog godir og mer lidur bara askoti vel. Er samt pinu hraedd um ad thad komi annad svona bakslag en vona audvitad ad thad gerist ekki.
Held nuna betur a spodunum.
En a fimmtudaginn fyrir viku var farid med skolanum til Brussell. Borgin gaeti thess vegna alveg verid i Frakklandi, thad eru engin skil a milli landanna. Thangad var 2 tima keyrsla sem var bara noto. Forum a safn med myndum eftir Magrit eda hvad sem hann heitir nu. Thad er einhver voda fraeg mynd eftir hann thar sem sest i bakid a tveimur alveg eins monnum. Svo lika einhver pipu mynd. Svona surrealiskt daemi.
Forum svo a eitthvad nedarjardarsafn um borgina og audvitad var lika einhver frjals timi. Thetta var bara agaett samt ekkert sukkuladi keypt.
Um helgina var afs hittingur i Lille. Thar hittust allir 18 krakkarnir i minu chapteri. Gerdum einhver verkefni og raeddum um reynslu okkar hingad til i France.
Skodudum borgina adeins lika, mjog falleg. A laugardagskvoldinu fengum vid 40 minutur friar i tivolii.
I gaer for eg svo med trudmanni og hjonunum ad flytja draslid hans i nyju ibudina hans. Thangad var tveggja tima keyrsla og a leidinni hlustudum vid a sigur ros. Veit samt ekki hvort hann filadi thad.
Um kvoldid var svo spist kebab. Svo for eg upp i rum og horfdi a pirets of the... nr. 2 i ferda dvdspilara sem var megakosy.
Naesta laugardag forum vid konan og stelpan til parisar ad horfa a balletinn Giselle i operunni. Thad verdur suddalegt. Thurfti reyndar ad hafna rosa djusi Lille ferd med stelpum ur bekknum en hun verdur vonandi farin seinna.
Her er allt frekar rolegt. Farid ad kolna i vedri, komid nidur i svona 13-15 gradur. Eg aetla samt ekki ad kvarta. Vid erum vist askrifendur af dagbladi fyrir krakka sem eg glugga stundum i. Thar er alltaf sagt hverjar eru heitustu og koldustu borgirnar. Reykjavik er buin ad vera nokkrum sinnum sem kaldasta borgin med 1 gradu.

Vonandi gengur allt vel heima. Sakna allra.

Ykkar Berta

Tuesday, September 22, 2009

Tvaer og half vika i Frakklandi

Astaedur bloggleysisins eru ymsar. Eg kemst ekki alltaf i tolvuna og thad tekur alveg agaetan tima ad gera thetta. Svo eru dagarnir bara svo stuttir.
Thad er ekkert spes af mer ad fretta.
Um helgina sidustu fyrir rumri viku gerdi eg fatt held eg. En a sunnudeginum for eg med lidinu a einhvern skrytin og ronalegan floamarkad. Eg tok bjartsyn med mer monninga en eyddi engu. Fekk samt brudu. En thessi floamarkadur er vist arlegur vidburdur. Hann endar svo thannig ad morg hundrud litlum brudum er hent ur einhverjum kirkjuturni. Svo berjast allir um ad gripa eina. Thetta var alveg frekar brutal, gleraugun voru kyld af kallinum. Sidan var safnast saman a einhverju torgi thar sem risavaxin bruda var brennd a bali vid undirspil midaldartonlistar eda eitthvad. Svo voru fullt af leikurum tharna til ad skapa midaldarstemningu og donsudu med.
I skolanum gerdist bara ekkert merkilegt. Eg er med svo skringilega stundaskra, hun er alltaf ad breytast. Svo er skipt i hopa a og b og viku a og b. Eg bara botna ekkert i henni.
A fostudagskvoldid forum vid stelpan ad passa hja folkinu vid hlidina. Eg hafandi gleymt litla kebabaevintyrinu minu i sumar thadi eitt stykki svoleidis. Nadi samt ad troda naestum ollu oni mig.
A laugardaginn var audvitad skoli.Einn sogutimi og svo ithrottir sem eru samt annars stadar i baenum. Thad var bara fint. Tek thad samt til baka ad thad se agaett ad hafa skola a laugardogum. Eg myndi ekki saetta mig vid thetta ef eg vaeri frakki. Frekar myndi eg sleppa thessu heilaga frii eftir hadegi a midvikudogum.
Svo for lidid ad horfa a mynd i menningarsentri hverfisins en hun var vist tekin upp i hverfinu. Skildi audvitad frekar litid samt alltilaej.
Thad var ad sjalfsogdu spist um kvoldid. Einhverjar spes pylsur sem eru vist eitthvad nordlenskt fyrirbaeri. Svo var theim trodid i braud og eg sletti audvitad sosu og salati a herlegheitin. Bara kasjual og kosy.
Um kvoldid forum vid svo til Lille, samt ekki kallinn, ad horfa a einhverja flugeldasyningu og lobbudum i gegnum tivoli i leidinni.
A sunnudaginn forum vid svo a hestahatid. Thad var agaett nema bara allt of langt. Eg fekk lika ad fara a bak i nokkrar minutur.
Thar hitti eg finnska skiptinemastelpu og vid vorum eitthvad ad spjalla. Mjog naes ad hitta einhvern sem er i somu stodu.
Nu eru tveir braedur i vidbodin komnir heim, 23 ara og 27 held eg. Thannig ad nu erum vid sjo herna. Their eru agaetir hef samt ekki talad mikid vid tha. Eg held i haldi mig bara vid trudsa, sem skellti i smakokur i dag. Ekki amalegt.
Eg fekk lika kassann fra mommu og pabba i gaer. I honum var m.a. ulpan min, fot, arsbyrgdir af ymsum baetiefnum og nommum. Svo ma ekki gleyma edalaedadunssaenginni hennar mommu.
Nuna er verid ad gera vid badid herna thannig ad eg tharf ad fara i sturtu annars stadar naestu daga.
I gaer for eg i fyrsta liffraedi timann minn. Thar gerdum vid mjog skemmtilega tilraun. En vid attum ad smakka mismunandi gerdir af coladrykkjum og segja hvad var best og hvad vaeri alvoru coke. Adeins annad level en madur er vanur heima.
I dag var svo bara skoli. A morgun, held eg, tek eg svo metro-id ein i og ur skolanum. En sidustu daga hefur mer verid fylgt til ad kenna mer leidina.
A fimmtudaginn fer eg svo til Brussell med skolanum i heilan dag. Kaupi vonandi sukkuladi.
Svo um helgina er afs-hittingur fra laugardegi til sunnudags i Lille. Tha get eg loksins fengid ad sja Lille almennilega. Thad verdur lika gaman ad heyra hvernig hefur verid hja hinum.
Mer lidur bara vel. Hef ekkert ad kvarta yfir. Sakna allra samt rosa mikid samt engin heimthra i gangi.
En kommentid endilega, thad er virkilega gaman ad lesa thau og hlaeja.

Berta

Berta

Sunday, September 13, 2009

Byrjud i skolanum!

Loksins er komid eitthvad futt i thetta.

A fimmtudaginn byrjadi eg i skolanum. Maetti timanlega til ad hitta mannin sem talar ensku og er yfir arinu minu held eg. Eftir halftima bid maetti madurinn og syndi mer skolann. Eg vard pinu hraedd aft hi ad hann er risastor.
Svo for eg i fyrsta timann minn sem var franska en ekki hvad. Thad voru allir mega naes. Eg sast vid hlidina a einhverri stelpu og hun sagdi ad eg gaeti alltaf talad vid hana ef mer lidi illa eda eitthvad og sidan lenti eg i annarri svona og eg veit ekki hvad og hvad, allir eintom lidlegheit. Thad sem eftir var dagsins fylgdi eg stelpu sem sagdi mer ad hun vaeri muslimi og ad nuna vaeri fasta hja theim. Thannig ad hun bordadi ekkert fra 5 um morguninn til 20 um kvoldid.
Eftir fronskutimann var farid i annan fronskutima i annarri byggingu en samt med sama kennara. Tha vorum vid ad studera hann Voltaire, en audvitad skildi eg ekki neitt.
That ok sogutimi vid. Skildi ekki alveg kennsluadferdina hja kennarandum. En hun var thannig ad hann las upp texta og svo attu allir ad skrifa hann upp beint eftir honum, pinu eins og dictation.
I hadeginu for eg heim ad borda og viti menn, var min ekki bara med fisk. Maturinn hefur skanad og avextirnir komnir ur felum.
Eftir matinn var enskutimi. Mer finnst svo fyndid ad heyra enskukennarana herna tala ensku , hun verdur eitthvad svo hafleyg hja theim.
Sidan var farid i thridja fronskutimann og svo heim um fjogur.
Um kvoldid forum vid ut ad borda med vinkonu konunnar og thad var mjog fint, nog af eftirrettum.
Adur en eg for ad sofa spjalladi eg adeins vid mommu og pabba sem var mjog gott.
Bara agaetisdagur.

Thad sama verdur ekki sagt um fostudaginn.
Eg thurfti ekki ad maeta fyrr en kl. 12. Af thvi ad um morguninn eru hinir krakkarnir I 3 tima profi I mismunandi fogum eftir vikum. Thegar eg hafdi loksins fundid rettu skolastofuna var enginn I henni. En eg fann einhvern kennara sem sagdi mer ad tala vid arsstjorann, kallinn sem talar ensku. Eftir ad hafa bedid fyrir utan skrifstofuna hans I klukkutima var mer tilkynnt ad hann vaeri ekki vid I dag. A endanum fann eg einhverjar stelpur sem eru med mer I bekk og fekk ad sitja med theim I spaenskutima. Svo var enska thannig ad eg hefdi ekki thurft ad maeta fyrr en 14:30.
Sidan var gat og tha verdur madur ad vera i skolanum. Eda rettara sagt er madur laestur inn i honum. Til ad komast ut tharf madur ad fara I gegnum eitthvad hlid og syna stundaskrana sina til ad sanna ad madur se buinn. Svo ad thegar madur er I gati fer madur inn i einhvern sal med odrum nemendum og a ad laera. Thar situr svo einhver skrytinn kall yfir ollum og rekur krakka ut ef their hafa laeti.
Sidan var listatimi.

Verkefnid sem krakkarnir eru nuna ad vinna ad er thannig ad vid eigum ad velja einhverja mynd eftir einhvern malara, sem eg man ekki hvad heitir. Svo eigum vid ad gera eins mynd an thess ad nota malningu. Voda rolegt bara. Kvoldid for svo i ad borda og rolegheit. Eg for ad sjalfsogdu snemma ad sofa thar se meg atti ad maeta I ithrottir kl. 10 dqginn eftir. En audvitad var kennarinn veikur svo eg beid bara med einhverjum stelpum ad spjalla.
Thad hefur komid mer a ovart hvad enginn herna thekkir sigur ros . Kannski eru their bara ekki eins fraegir og madur helt. Eg var I thykku islensku lopapeysunni minni og ein stelpa sagdi ad henna finndist hun flott. Eda eins og hun ordadi thad : “ I enjoy your sweat”.
Annars verd eg ad segja ad mer finnst krakkarnir I skolanum mjog toff klaedd. Eg hafdi heyrt ad krakkar herna vaeru ekki ad fylgja nyjustu tisku eins og heima en eg er ekki sammala. Thau eru samt ekki eins arti og heima. Og bara frakkar almennt mjog smekklegir.
Mun litagladari og litlir krakkar alltaf ljog kruttlega klaeddir. I gaer forum vid I kirkju um 17. Thad var bara mjog noto. Song franska salma . En thetta var mjog afslappad og fullt af ungu folki med litla krakka. Thad var abyggilega annar hver karlmadur tharna med svona peysu bundna kasjual um herdarnar og i mokkasinum.
Krokkunum herna finnst morgum mjog erfitt ad skilja hvad eg er ad gera ein I Frakklandi. Thau na ekki alveg skiptinemakonseptinu.
I skolanum hefur muslimastelpan verid mjog hjalpsom(hun er samt ekki med slaedu eda eitthvad thannig). En nuna sit eg med henn I ollum timum sem eg er ekki ad fila. Hun er vid thad ad kaefa mig med almennilegheitunum. Mig langar lika ad kynnast odru folki.
Um daginn var eg ad horfa a BBC prime herna og thad var einhver turistathattur I gangi og eg held thau hafi verid a Islandi. Alla vega var stelpan sem verid var ad tala vid i peysu sem a stod Island. En eg heyrdi ekki nogu vel til ad daema um hvar thau voru.Thilik tilviljun, thetta var eiginlega I fyrsta skiptid sem eg hef horft a sjonvarpid herna.
Lidinu herna finnst fatt fyndnara en thegar eg segi kerra, rrrin okkar eru vist eitthvad skrytin.
I lokin er thad svo eitt trudsagullkorn. Madurinn elskar twilight. Eg er 17 ara stelpa og eg elska thad ekki einu sinni. Eg vil samt taka thad fram ad hann er mjog indaell og lidlegur. Alltaf ad kenna mer fronsku og syna mer hluti og redda ymsu. Hann virdist lika alveg edlilegur en svo segir hann stundum svona skrytna hluti.
Annars er fatt ad fretta af fronskunni. Skil kannski pinu meira. En get vodalitid talad. Svo thegar eg loksins get myndad heila setningu skilur enginn hvad eg er ad reyna ad segja.
Mer er farid ad lida betur herna en samt upp og nidur. Fjolskyldan er lika almennileg. Thau eru kannski ekki drauma host-fjolskyldan min en agaet engu ad sidur. Vid kvoldmatinn I gaer var trudsi ekki heima og thad var bara frekar glatad. Enginn ad kenna mer neitt eda spyrja neitt.
Lidid herna gerir ser ekkert til upplyftingar og helgarkvoldum. Nema thad er is I eftirrett. En annars engin biomynd eda neitt og snemma ad sofa.
Mer er alltaf skitkalt herna, serstaklega inni. Lopapeysan hefur komid ser vel. Samt er hitin alltaf kringum 20.
Svo er ekki hadegismatur I dag fyrr en 2-3. Thad er vist til sids a sunnudogum.

Eg skrifadi thetta i word og gat svo ekki pastad nema ad thetta kaemi svona asnalega ut.

Takk fyrir ad lesa. Sakna allra rosa mikid. Vona ad thetta fari ad lida eitthvad hradar. Verid dugleg ad kommenta. Eg hlo lengi eftir a sidast eftir ad hafa lesid kommentin ykkar.

Ykkar Berta

Wednesday, September 9, 2009

Skoli a morgun

Ligg nu upp i rumi ad skrifa blogg og hlusta a Let it be me med Bob Dylan, takk fyrir i-podinn og playlistann Dagur minn.
Annars hefur fatt a mina daga drifid. Hangi bara heima allan daginn og les Harry Potter eda horfi a biomyndir. A manudagskvoldid for eg reyndar med stelpunni a hestaaefingu, horfdi samt bara a.
I gaer var svo eitthvad kjot i hadegismat og svona graenmetisgumms med. Thar sem konan er dagmamma eru alltaf svona ca 5 litlir strakar herna a daginn. Svo i gaer i hadegismatnum lamdi konan einn 2 ara strak thrisvar frekar fast a hondina og oskradi a hann bara af thvi hann gat ekki bordad meira og slefadi matnum sem hun var buin ad troda upp i hann ut ur ser. En thetta er vist bara normid herna.
Lidid sagdi mer i gaer ad i Frakklandi vaeri vaninn ad borda fisk i hadegismat a midvikudogum en baettu svo vid hlaejandi "en ekki vid, haha".
I gaer for eg med stelpunni og trudsa i bokabud. A leidinni keyrdum vid framhja sirkus svo strakurinn sagdist aetla ad fara med mig einhvern timann ad sja sirkus herna.
Siden i gaermorgun aetladi eg ad fa mer ad drekka og tok bara eitthvad glas med mynd af eyrnaslapa ur skapnum. Kemur tha ekki trudmann og bannar mer ad nota thad af thvi ad thetta var glasid hans. En svo gaf konan mer bangsimonglas sem verdur tha glasid mitt.
Eg held ad eg se loksins buin ad leysa radgatuna um afhverju eg var sett i herbergi med stelpunni fyrstu tvaer vikurnar tho ad herbergid mitt se laust. Thau sogdu ad thad vaeri af thvi ad yngsti brodirinn sem er 23 ara vaeri i frii i S-Frakklandi. En eg skildi aldrei hvad thad kom malinu vid. Thar til ad eg fattadi ad thessi aumingja 23 ara drengur er vanur ad sofa i sama herbergi og 13 ara systir sin. Og nu er hann i frii svo eg sef i ruminu hans. Greyid madurinn.

En thad er lika eitthvad skemmtilegt buid ad gerast herna . I morgun forum vid Marie asamt tveimur krokkum sem hun var ad passa ad skra mig i skolann. En thad er einkaskolinn Saint Remi. Eg var mjog satt med hann, gamall og flottur. Eg er mjog fegin ad thurfa ekki ad fara i ronaskolann Baudilaire.
Madurinn sem vid toludum vid var mjog naes og taladi ensku, loksins. En eg fer a bokmenntabraut, annad ar. Vid voldum timana saman. Eg fer mikid i ensku og fronsku, sma staerdfr. sem er tolvuvisindi og vist frekar lett, pinu liffraedi og edlisfraedi, slatti af listum sem eg held ad se myndlist. Svo lika einhver saga. List bara vel a hana.
A midvikudogum er eg buin 12 og A fostudogum byrja eg eftir hadegi og svo alltaf einhver got. Svo kemur rusinan i pylsuendann. Er min ekki i skolanum a laugardogum. Eg er samt alveg satt thar sem eg nenni ekki ad hanga heima.
Langar lika i aukafronskutima. Svo tharf eg ad fara ad huga ad einhverju sporti til ad stunda.

En nu er eg ad fara ad hlusta a tonlist og svo i bud ad kaupa skolabaekur. Veit ekki hvad eg
myndi gera ef eg thyrfti ad hanga herna inni mikid lengur. Hef haft fatt annad ad gera en ad velta mer upp ur heimthranni. Mig langar lika svo ad hitta annad folk og jafnaldra mina. Eins gott ad thay seu naes.

Eg veit ad thad var eitthvad vesen med ad kommenta en eg er buin ad laga thad.
Plis kommentid, thau geta dimmu i dagsljos breytt og endilega sendid bref.
Sakna allra svaka mikid.

kv. Berta

Monday, September 7, 2009

Hallo Ballo

Sit nu i stofunni hja fjolskyldunni vid heimilistolvuna. Veit ei hversu ytarlegt eg a ad hafa thetta.
En a fostudaginn var flugid og thad gekk mjog vel. Svo sotti einhver afs kall okkur islensku stelpurnar asamt einni saenskri. Svo var farid a komunamskeidid i Paris sem var gaman thratt fyrir dass af hangsi. Eg lenti i herbergi med einni Kanadiskri stelpu, Ny Sjalenskri og Tailenskri. A laugardaginn forum vid svo i skodunarferd um Paris en vorum samt i rutunni allan timan nema vid forum ut hja eiffelturninum og tokum myndir og svona. A sunnudaginn var eg vakin klukkan 5, asamt nokkrum odrum bara svo vid gaetum bedid i 3 tima a lestarstodinni. Vid vorum frekar morg ad fara til Lille eda um 12 krakkar held eg. Svo a lestarstodinni tok fjolskyldan a moti manni. Svo foru allir a einhvern stad og allir thurftu ad kynna sig a fronsku en thad gekk samt fint. Vid fjsk forum svo og fengum okkur ad borda og svona. Restin af deginum for svo bara i ad koma ser fyrir. Nuna naestu tvaer vikurnar gisti eg i herbergi med host-systur minni en veit samt ekki alveg afhverju. En herbergid mitt sem eg fae svo er pinkulitid svo eg kvarta ekki; rett svo kemst eitt rum inn i thad. Fjolskyldan er allt i lagi en eg er ad reyna ad vera jakvaed og daema ekki of hart strax. Stelpan svoleidis elskar hesta. Hun tjadi mer thad i gaer ad einn brodirinn elskar truda og eg sa inn til hans og thad vard allt i sirkusmyndum og svoleidis kripi heitum.
Eins og stadan er nuna a eg ekki eftir ad koma heim algjor feitabolla. Eg er bara aldrei svong en reyni samt ad troda einhverju i mig. Eg miskildi lidid i gaer thannig ad nu halda thau ad eg bordi ekki mjolk ut a morgunkornid mitt. Svo i morgun bordadi eg thurrt Lionbarkorn. Thau eiga sem sagt bara sukkuladikorn. Eg hef heldur ekki sed avexti herna og i gaer var FRYSTIflatbaka i kvoldmat.
Thad er eitthvad pinu vesen med skolann en thau eru ad reyna ad skipta svo eg fari i einkaskola. En thad kostar peninga svo mamma og pabbi thurfa ad blaeda.
Thad er mjog othaegilegt ad skilja ei sjitt en thad kemur.
Sakna allra svaka mikid er buin ad vera med slatta mikla heimthra.
En nuna er eg ad fara i gongutur med einum brosa ad saekja einhvern dreng sem kjellan er ad passa.

Baejo ; Plis kemmentid