Monday, December 28, 2009

Julenbloggen

Eg vona ad allir attu gledileg og notaleg jol. Eg thakka fyrir allar jolakvedjurnar.
En eg aetla ad byrja a byrjuninni.
Fyrir nokkrum helgum var semsagt afs hittingur. Forum i Lazertag thar sem eg skradi mig a spjold sogunnar med minum ofurslaka arangri. Minus 2000 stig takk fyrir.
Thad var samt stud. Eftir thad forum vid ut ad borda.
Ekkert merkilegt gerdist i skolanum. Naestseinasta daginn fyrir jolafri var eg allan daginn i listatima asamt ollum arunum. Af hverju eg valdi list sem valfag veit eg ekki.
Fyrstu helgina sem eg var i jolafrii skreyttum vid husid hatt og lagt. Adeins annar still yfir thessu en heima. Allt ut i glansbordum og blikkandi jolaserium. En eg er bara thakklat fyrir ad thau skreyta tha alla vega. A sunnudeginum forum vid i hadeginu ut ad borda og stad sem serhaefir sig i ostum. Voda kosy tho eg hafi latid ostana eiga sig.
Vikan for svo bara i hangs og kosyheit. Man hreinlega ekkert hvad eg gerdi.
Svo kom loksins adfangadagur. Dagurinn for ad mestu leyti i ad rulla litlum pylsum i deig og skera avexti fyrir bolluna.
Um klukkan niu var byrjad ad borda. Byrjudum rolega a snakki og thess hattar. Fyrsti forretturinn var humarsupa. Svo tok vid gums i deigi, veit ekki hvad thad heitir. Svo var annad gums i fati bordad. Sidan loksins adalretturinn sem var hestakjot. Svo sukkuladikaka i eftirrett. Eg var vel sodd eftir thetta fimm retta at, vaegast sagt.
A joladag kom vinkona hjonanna og elsti strakurinn. Um hadegid opnudum vid pakkana.Og eg var bara ansi hreint anaegd. Hjonin gafu mer goda penna af thvi eg skrifa svo mikid af brefum, geisladisk med thekktustu fronsku logunum sungin af fraegustu fronsku songvurunum, otrulega kruttleg nattfot og svo hlyja peysu af thvi mer er alltaf svo kalt. Eg var virkilega anaegd med thetta allt saman og verd ad segja ad thau hafi hitt naglann beint i hofudid. Fekk lika nokkrar gjafir ad heiman og thakka kaerlega fyrir mig.
Eftir gjafastussid bordudum vid. Ekki alveg eins svakalegt og a adfangadag. Dadyr i adalrett og rullutertur i eftirrett, eins og trjadrumbar.
Kvoldid for i ad spila nyju leiki stelpunnar i Wii og pinu kokuat, hihi.
Laugardagurinn for i alls konar erindagjordir.
Tha eignadist eg lika loksins fraenku heima a Islandi, hana Thoreyju. Storglaesileg. Innilega til hamingju med gullmolann Helga og Bjarni!
I gaer forum vid a jolamarkadinn i Lille. Bara kosyheit. Gaeddum okkur svo a djupsteiktum, hollenskum saetabollum.
I dag hitti eg nokkra afs krakka i Lille. Vid fengum okkur ad borda pizzu og lobbudum svo um. Endudum a heitu sukkuladi a kaffihusi.
Thad er adeins farid ad hlyna aftur eftir thetta mikla frost um daginn.
Jolafriid er buid ad vera mjog notalegt. Buin ad lesa helling og borda enn meira.
A morgun a min bara 18 ara afmaeli. Hef ekki hugmynd um hvad verdur gert tha. Kannski rolti eg ut i bud og kaupi mer vodkaflosku og sigarettupakka bara af thvi ad eg ma thad. Nei, grin.
Aetla ad fara ad hella mer i lestur.

Ykkar Berta

8 comments:

  1. Til hamingju með 18 ára afmælið elsku Berta - þá ertu bara orðin fullorðin- eða þannig- Við höldum upp á afmælið þitt hérna heima (og 19 ára afmæli okkar pabba þíns) - kannski rúllum við pyslum í deig- hver veit. Þetta hljómar allt voða kósí hjá þér fyrir utan hestakjötið. Er hestamanneskjan á heimilinu alveg sátt við að borða vini sína.
    Njóttu dagsins gullið mitt! - Þín mamma

    ReplyDelete
  2. Jæja BG, þá ertu orðin formlega lögráða (bæði sjálfráða og fjárráða). Þú fórst því að heiman sem barn og kemur aftur fullorðin, reynslunni og franskri tungu ríkari. Hjartanlega til hamingju með daginn! -Þinn pabbi

    ReplyDelete
  3. Til hamingju með 18 ára afmælið. Takk fyrir að fá að lesa bloggin þín.
    Bið að heilsa fjölskyldunni þinni í Frakklandi.
    Kær kveðja, þín frænka, Adda

    ReplyDelete
  4. Enn og aftur Berta mín - til hamingju með afmælið! 18 ára! mér finnst eins og það hafi gerst í gær að þú fæddist litla dúllan... Ég kom við hjá ömmu þinni í gær og við vorum að skoða myndina af þér í ljósgræna kjólnum sem amma prjónaði á þig. Þú ert rúmlega 1 árs á myndinni og amma þín tekur hana upp á hverjum degi og horfir á hana og kyssir! og hefur hún gert svo um árabil! þú átt sérstakan sess í hjörtum okkar allra.
    Það verður spennandi að heyra af veisluhöldum í France í tilefni dagsins ....
    Hafðu það gott og ég er viss um að Þórey litla biður að heilsa - og auðvitað Snjólfur og allir hinir (líka Snælda - kisan sem allt í einu kom á heimilið í október - meira um það síðar).
    Gunna móðursystir

    ReplyDelete
  5. Til hamingju með afmælið fullorðna Berta mín! minningarnar um þig litla streyma fram í hugann, mér finnst ég nú eiga smá í þér, enda var ég Barnapían þín:-) (með stóru 'B'-i sko)

    Það var nú smá séns að þú fengir litla frænku í afmælisgjöf en Þórey okkar Bjarna ákvað að fá sér sinn eigin afmælisdag, annan í jólum, þannig að hér með verður þú í afmælisboði þann góða dag. takk fyrir hamingjuóskirnar, við erum skýjum ofar enda gekk fæðingin rosa vel og Þórey er hinn mesti engill.

    það er gaman að sjá að það er nóg um að vera hjá þér og maður hlakkar alltaf til að lesa meira frá þér. njóttu nú frakklands sem fullorðin, en kannski ekki með því að detta í vodka og sígarettur...

    ástarkveðja frá litlu fjölskyldunni, Helgu, Bjarna og Þóreyju

    ReplyDelete
  6. Til hamingju með afmælið frænka

    Er ekki málið að fagna áfanganum með því að kveikja upp í pípunni og fá sér væna skvettu af rauðvíni... mon dieu c'est la vie.

    Eyfi og fjölskylda.

    ReplyDelete
  7. Hæ Bertan mín
    Til hamingju með daginn um daginn og gleðilegt nýtt ár. Trúi því ekki að það séu 4 ár síðan ég gaf þér afmæliskórónuna þína, finnst þér það ekki óhugnanlegt?
    Lýst vel á vodkað og retturnar þótt að ég efist um að það muni gerast:)
    Sakna þín og stefni á að hringja í þig sem allra allra fyrst þar sem þetta fór allt í vitleysu í síðustu viku.
    Þú veist svo að við sendum þér gjöfina þína um leið og við fáum hana í hendurnar:)

    1000 knús til þín yfir hafið
    þín Marta

    ReplyDelete
  8. Við viljum blogg!
    Við viljum blogg!
    Við viljum blogg!

    ReplyDelete