Kominn timi a eitt gott blogg.
A fostudaginn i sidustu viku var fjogurra tima fronskuprofid. Dullukennarinn var buinn ad bua til spes prof fyrir mig svo thetta var ekki svo slaemt. Thar ad auki fekk eg ad vera med ordabokina mina.
Helgin var svokollud Telethon helgi. Thannig ad um fostudagskvoldid for eg i einhverja ljosagongu sem endadi svo i salnum thar sem hullumhaeid for fram. Frakkar eru mjog hrifnir af alls kyns skrudgongum. Thad var halfgerd ludrasveit i broddi fylkingar og a eftir fylgdu litlar stelpur i glansbuningum sem donsudu i takt vid teknotonlist. Svona danssveit heitir eitthvad spes en eg man ekki hvad. Byrjar a m.
Svo var loksins komid i thennan blessada sal thar sem verid var ad selja dot og mat til styrktar Telethon. Og eg bordadi tharna i oll mal alla helgina. Thetta var nu halftomlegt enda skemmtiatridin ekki upp a marga fiska. Laugadagskvoldid var hapunkturinn; kantrykvold. Linudansarar hverfisins donsudu og eg veit ekki hvad og hvad. Hef aldrei verid hrifin af thessu fyrirbaeri hvad tha i fjora tima.
A sunnudaginn forum vid a jolamarkad adeins i burtu hedan. Forum reyndar
fyrst a einhvern frekar sodalegan, var ekki viss hvort thetta vaeri tivoli eda jolamarkadur. Komumst svo ad thvi ad vid vorum i vitlausum bae.
Svo forum vid a rettan sem var miklu meira kosy. Jolatonlist og laeti.
Hjonin keyptu thar arsbyrdir af koniaki. Eg stutadi einum kandiflos sem heitir a fronsku barbe à papa (pabbaskegg eda eitthvad svoleidis). Er thad thadan sem nafnid Barbapapa er komid a bleiku figurinni?
Um kvoldid spjalladi eg vid fjolskylduna heima sem var rosa gott og gaman.
A thridjudaginn for eg med enskuplus bekknum i leikhus a leikritid The portrait og Dorian Grey eftir Oscar Wilde. Thad for fram a ensku en leidinlegra leikrit hef eg ekki sed. Ekkert ut a soguna ad setja en thetta var bara hraedilegt. Reyndu greyin ad gera thetta fyndid en thad tokst nema orsjaldan.
I morgun var i skolanum haskolakynning. Eg for nu thott eg atti litid erindi thangad.
Svo var ad sjalfsogdu keila, 50 stig i dag.
A eftir er svo afs hittingur og thad verdur farid i lazertag og ut ad borda held eg.
Ein vika eftir af skolanum og svo jolafri.
Aetla ad segja thetta gott i bili.
Ykkar Berta
Saturday, December 12, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Hæ Bertus minn
ReplyDeleteÞú ert loks farin að standa undir bloggaranafninu, er að fíla það:)
Lazertagið hljómar ekki sem verst, hef ekki prófað það og ég minnist þess ekki að þú hafir gert það áður svo spennandi að sjá hvernig það verður.
Já leiðinlegasta leikrit sem þú hefur séð segirðu, ert þá væntanlega búin að gleyma henni Ausu okkar forðum daga.
Langar svo endilega að fara að heyra í þér, láttu vita ef það er í lagi.
1000 knús til þín yfir hafið
Marta
Hæ Berta mín
ReplyDeleteÉg hélt að sagan um Dorian Grey væri einhvers konar hryllingssaga, sá bíómyndina fyrir langa löngu. Þetta hefur kannski átt að vera einhver grínútgáfa.
Nú bíð ég bara eftir að línudansarar hverfisins hérna fari á stjá - til að hleypa smá lífi í þetta allt saman.
Ástarkveðja,
þín mamma
Hæ Berta mín.
ReplyDeleteMér finnst þú alltaf vera á e-m sýningum. Ánægð að ég þarf ekki að standa í slíku en þú veist vel hvað ég er lítið fyrir leikrit!
Ég væri svo til í að rölta á jólamörkuðum, jólamarkaðurinn í Lille virkar mjög kósý, allavegana samkvæmt google myndunum:)
Mjög sátt með aukin skrif þín en endilega drífðu þig að skrifa mér hvenær ég má hafa samband!
Sakna þín svo mikið
Hólmfríður
E.s. ég svo rétt vona að þú hafir sýnt Frökkunum þína mögnuðu línudanshæfileika, Maður gleymir nú ekki línudansinum úr Hvassó;)
Sæl Berta
ReplyDeleteþú ert bara á kafi í menningunni, Dorian Grey og allt... Athyglisverð pæling þetta með Barbapapa -hljómar satt að segja mjög trúlega.
Best að gefa þér smáveðurlýsingu... heitt! bara sumarveður 9°C dag eftir dag en skelfing er nú dimmt - maður sér ekki út úr augum fyrir myrkri, ansi þrúgandi satt að segja. Ég myndi nú frekar vilja fáeinar mínúsgráður og snjó! En nú er spáð kólnandi svo það rætist ef til vill úr.
Hafðu það gott ljúfan
Gunna móðursystir
Hæ Bettý!
ReplyDeleteÉg finn til með þér að hafa þurft að fylgjast með þessu línudans festivali þar sem ég veit að þú ert ekki helsta áhugamanneskjan ;) (ekki frekar en ég hehe).
Ég er ekki alveg að skilja þetta keiluæði í skólanum, það hefði frekar passað ef þú hefðir farið til USA ;)
Alltaf jafn gaman að lesa bloggin þín :)
Kveðja, Unnar