Skammarlegt, alveg hreint skammarlegt bloggleysid hja manni.
Eg tharf thvi ad spola vel til baka.
Afmaelid mitt var rolegt. Eg og host-systirin forum i bio og saum dickens jolamyndina, ekkert meistarastykki thar a ferdinni. Um kvoldid fekk eg svo koku med oslokkvandi kertum og svo sungu thau afmaelissonginn. Thau gafu mer halsmen i gjof.
Gamlarskold var enn rolegra. Vid vorum bara fjogur heima, eg, stulkan, sem var veik og hjonin. Atum ostafondu, braudi dyft i bradinn osti, ofmetnasti matur sem fyrirfinnst. Kys heldur raclette. Svo var bara horft a programm i immbanum og farid ad lulla um thrjuleytid. 1. januar kom elsti brodirinn asamt kaerastanum ad borda.
Kiktum a 2012 i bio a sidasta deginum fyrir fri. Hun var svadaleg.
Blakaldur hversdagsleikinn tok svo vid. Samt mjog gott ad vera komin a skrid aftur.
Pingpong tekid vid af keilunni, er adeins betri i thvi. Madur tharf sjalfur ad redda spada.
Mer voru gefin 20 sent i sogutima um daginn. Kennarinn aetladi ad vera voda snidugur og sagdi, horfandi a mig, ad Island tilheyrdi Skandinaviu. Eg var nu fljot ad leidretta thessa vitleysu og hann gaf mer 20 sent fyrir heimskuna i ser.
A midvikudeginum i sidustu viku hitti eg nokkra afs-ara i Lille. Atum og roltum.
Kiktum ofkors a utsolurnar.
A laugardaginn for eg asamt maedgunum til Parisar ad horfa a Hnotubrjotinn. I thetta sinn var thad i hinni operunni, sem er mun nutimalegri. Helt thad yrdi ekki eins mikill stemmari en hun var mjog flott. Og ballettinn ad sjalfsogdu aedi. Strakurinn missti samt ballerinuna i einu stokkinu heldur kludurslega en thad kryddadi thetta bara. Draumur i dos as sja Hnotubrjotinn i Paris. Thad er nu samt ordid soldid threytt ad sja bara borgina i gegnum rutugluggana.
Herna um heimilid er buin ad vera ganga aelupest, obboslega hressandi eftir allt jolaatid.
Er min svo ekki ad fara i thvilikt brutal munnlegt fronskuprof bradum. Thetta er semsagt aefingaprof fyrir fronsku studentsprofin.. Thessu akvad fronskukennarinn ad aela ut ur ser a thridjudaginn. Hann er buinn ad vera ad tala um thetta prof i marga manudi og i hvert skipti sem eg heyrdi hann tala um thau lokadi eg eyrunum. En nei, nei nu tharf eg ad taka thad. Fyrir profid er manni uthlutadur einhver texti og svo fyri framan kennarann og domara tharf madur ad analeasa thetta og kryfja.
Oj,gaeti ekki einu sinni gert thetta a islensku.
Var bara i skolanum til hadegis i dag. Bordudum ostafylltar pyslur vafdar i beikon. Notadi seinni partinn i ad taka til i herberginu minu.
A morgun er svo skoli, held eg aefing og um kvoldid matarbod. En matarbod er kannski fullsterkt ord yfir thessa samkomu. Efir miklar paelingar um hvad aetti ad hafa i matinn var snarlega haett vid ad hafa braud i grilli og akvedid ad splaesa i pylsur med ollu. Thetta er i tilefni af afmaeli modurinnar sem var i sidustu viku.
Svo eru aldeilis frettir. Er ad fara a skidi i olpunum i friinu i februar. Eg fer med einni afs-konu fjolskyldu hennar og einni annarri afs-stelpu fra nyja-sjalandi.
Eg verd tharna i taepa viku.
Buinn ad vera mjog kaldur vetur og eg er ordin virkilega threytt a honum. Oft miklu kaldara en heima a islandi. Langar i sol og blidu.
Hafid thad oll gott a nyju ari!
Ykkar Berta
Friday, January 15, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Sælinú
ReplyDeleteGaman að sjá að bloggarinn er risinn frá dauðum, hef saknað þess að hafa ekkert að lesa:)
Þessar Parísarferðir þínar hljóma ekkert smá spennandi, reyndu að dobbla kellu til að rölta um borgina næst í stað rútuferðanna. Varðandi Alpana þá öfunda ég þig ekki lítið af því, damn Berta!
Það er reyndar búið að vera semí heitt undanfarið (miðað við desember sem var vel kaldur) en sem betur fer áttu 66°N til að halda á þér hita þarna í kuldanum:)
Haha skemmtu þér vel í þessu prófi, þú hlýtur nú að fá smá special treatment þar, er það ekki? Efast um að MR-nasistarnir láti skiptinemana hér kryfja íslensk fornkvæði og annað sem er varla skiljanlegt okkur sem eigum að heita Íslendingar.
Sakna þín mikið snúllína en það styttist óðum í endurfundi!!! Aldrei verið styttra í það;)
1000 knús til þín yfir hafið
Marta
Pylsur er líklega algengasti matur í heimi (öfugt við það sem haldið er fram í ss auglýsingum)en það er variasjonin sem er kulturel. Sendu okkur svo skýrslu um þessa í kvöld!
ReplyDeleteHér heima gengur á ýmsu og ekki allt svo skemmtilegt. Grenjandi rigning í dag en það grillir í fyrstu merki minnkandi skammdegis.
Það er aldeilis sem kennararnir treysta þér til, held að þeir séu búnir að gleyma því að þú ert ekki frönsk...
Þinn pabbi
Sæl Berta mín - loksins loksins blogg!
ReplyDeletemaður tékkar á þér daglega og er við það að gefast upp en...Þá gerist það! Það er gaman að heyra af ævintýrum þínum í France. Þetta frönskupróf verður engin smá reynsla - þú jarðar auðvitað liðið ... og svo eruð það skíði maður! Ekki dónalegt.
Gangi þér allt í haginn kæra frænka
Gunna móðursystir.
Gott og gaman að heyra frá þér elsku Berta.
ReplyDeleteÞað verður ekkert smá gaman fyrir þig að fara á skíði og þetta er mjög fallegur staður(Annecy) samkvæmt myndum.
Gangi þér svo vel í frönskuprófinu! Hugsa til þín.
Þín mamma
Flott hjá þér að þiggja boðið, skora á þig að fara bæði á bretti og skíði.
ReplyDeleteAnnars er ég ekki sammála með ostafondue-ið, mér finnst þetta hrein snilld á köldu haustkvöldi. Bara muna að drekka annað hvort te eða hvítvín því ella klumpast osturinn í maganum og það er ekki gott.
Spáðu svo í hvað frönskuprófin verða létt fyrir þig í MR á næsta ári... þú átt svoleiðis eftir að rúlla þessu upp.
Að lokum: lol um komment Mörtu um "MR-nasistana", ég hafði alltaf mjög gaman af því að kryfja textana, sérstaklega man ég eftir Hávamálum og nokkrum eftir okkar fyrri meistar sem hreyfðu við mér... sé ekki talað um vísurnar í Eglu sem eru bara snilld.
Víííí blooogg :D
ReplyDeleteÞetta virðist allt vera svaka stuð og jiidúddamía hvað ég öfunda þig mikið að vera að fara í alpana!
Talandi um veður þá eru þrumur og eldingar as we speak ! Kreisí, hef ekki séð eldingar í mörg mörg ár, var ekki alveg að átta mig á því hvað þetta væri fyrst..
En skemmtu þér eins vel og hægt er og ég mun vera með þér í anda !
-Hanna Sigga
hey sæta frænka
ReplyDeletegaman að fá blogg aftur, líst vel á skíðafrí hjá þér!!
núna geturðu skoðað litlu frænku á http:\\thorey.apaskott.is
yes!!
knús og kossar frá íslandi