Er lika komin i fri svo eg hef fatt betra vid timann ad gera.
Thetta hefur verid svo upp og nidur herna eg held eg eigi eftir ad fa hjartaafall ef thetta heldur svona afram. Konan alltaf eitthvad thu talar svo litid, thu talar svo litid. Svo tharf lika alveg rosalega litid til ad pirra hana.
Eg er alltaf ad reyna utskyra: sorry gells eg er bara svona. Thannig ad nuna er stundum soldid vandraedalegt a milli okkar. Hvorug okkar veit hvad hun a ad segja svo annad hvort setjum vid saman i hljodi eda tolum um vedrid.
Svo eru thad tveir elstu strakarnir sem i alvorunni hafa ekki sagt stakt ord vid mig sidan eg kom. Eg veit ef eg vaeri ad fa skiptinema inn a heimilid vaeri eg adeins forvitnari um einstaklinginn. Mer finnst thetta bara donalegt.
Kallinn er oft eitthvad ad spjalla. Gerir reyndar stundum grin af mer en eg reyni ad lata thad ekki pirra mig. Vaeri allt i lagi ef thad vaeri fyndid en thad er thad sjaldnast. I gaer sagdi hann mer ad eg vaeri très sacrè. Eg vissi audvitad ekkert hvad thad thyddi og spurdi. Hann sagdi tha " haha thu skilur aldrei hvad madur er ad segja" . Vid hverju byst eiginlega madurinn? En thetta thydir vist spes eda serstakur. Svo baetti hann vid ad eg vaeri leleg ad tala en honum likar samt vel vid mig.
Svo er svo gasalega mikid af vandamalum og vesenum i fjolskyldunni. Kallinn sagdi meira segja vid mig i gaer "Thu varst nu ekkert rosalega heppin med fjolskyldu, ha"
Thetta er allt i lagi, mer finnst bara svo mikil pressa vera a mer. Svo bid eg bara eftir naesta "er allt i lagi thu talar svo litid" raedu. Eg veit ekki hvort eg eigi eftir ad lifa thad af.
Eg byrjadi i gaerkvoldi a einhverju dansnamskeidi. Thetta heitir held eg Tzigane. Eg er reyndar langyngst flestar svona 40 -50 ara. Thetta verda thrju kvold, fram a midvikudag og er mjog gaman.
Skellti svo einni mynd af nokkrum stelpunum i bekknum, ad bida eftir straeto a leid i leikfimi!
Ykkar Berta

Elsku Berta mín - Gaman að fá mynd af bekkjarsystrum þínum, reyndar gætu sumar alveg verið íslenskar bleiknefjur úr MR. Vonandi er gaman í skólanum, alla vega nóg að gera.
ReplyDeleteÞetta með fjölskylduna eru vonandi bara byrjunarörðugleikar. Frakkar eru allt öðruvísi en við - tala meira og grenja meira - er mér sagt, þó maður eigi auðvitað ekki að alhæfa um heila þjóð.
Kossar og knús
Þín mamma
Kæra Berta - ekki fá hjartaáfall! þú ert örugglega ekki búin að heyra það í síðasta sinn að þú talir lítið!! Ætli kerlingarræfillinn væri ángæðari ef hún hefði hjá sér einhvern símalandi ungling? efast stórlega um það.
ReplyDeleteHvernig væri að skella á hana nokkrum skömmtum af ástkæra ylhýra! Hún fengi þá tilfinningu fyrir því í hvaða stöðu þú ert... og svo eru ekki allir eins og frekar vil ég hægláta dömu en símalandi kjaftakvörn, en smekkur allra er ekki eins.
Ég var mjög glöð þegar ég sá myndina af herberginu þín. Flott! ég var með einhverja mynd í huganum af e.k. klausturklefa, dimmum og köldum...svona fer ímyndunaraflið með mann stundum.
Hafðu það frábært elskan
Gunna móðursystir.
jei! meira blogg strax, ekkert smá glöð að sjá það. gaman að sjá mynd af skvísunum í bekknum þínum líka. það er nú svoldið skrítið að lenda inn í svona annarri fjölskyldu, hvað þá franskri drama fjölskyldu, haha, þú venst þessu smám saman, allavega reyna að taka það ekki inná þig þegar þau eru með einhverjar meiningar :-p
ReplyDeleterisaknús og kossar
VÁ bjóst ekki við bloggi svona fljótt aftur! Var fyrst að kíkja núna, er sátt með þetta:)
ReplyDeleteJá ég er sko sammála með að þessir drengir eru dónalegir, hvað er eiginlega málið? Hafa kannski ekki langt að sækja þetta því ekki hljómar kallin betri! En líttu á björtu hliðarnar Berta mín, trúsði hljómar æði og þetta á bara eftir að batna:)
Sæt mynd af stelpunum í bekknum, ekki laust við að smá öfund geri vart við sig...:)
Er með bréf í vinnslu en ég lofa engu hvenær það kemur en þú getur hlakkað til.
1000 knús yfir hafið til þín
Marta