Wednesday, January 27, 2010

Rien est si beau, si leste, si brillant......

Eg sem helt ad thad vaeri ad koma vor. Var buin ad leggja dunulpunni og farinn ad fara adeins lettklaeddari i skolann. Fullmikil bjartsyni i manni, i dag var um frostmark.
Mer finnst thad mjog leidinlegt hvad enginn fylgist med handboltanum herna. Eg nae mer stundum i dagblod thegar eg er a leidinni i skolann med metroinu og tha er kannski i mesta lagi ein litil klausa um gengi frakka i keppninni. Thannig ad eg get ekkert verid ad monta mig hvad islandi gengur vel.
A laugardaginn sidasta for eg a Le Barbier de Seville med skolanum. Eg gat alveg hlegid thott eg skildi ekki alveg allt og einbeitingin var ekki mikil af minni halfu.
A midvikudaginn var svo munnlega profid fraega. Dagana adur reyndi eg eitthvad ad botna i textunum sem voru fyrir profid. Lenti a agaetis texta, 3 kafla ur Candide, eg held thad nu. Profid gekk allt i lagi, vona ad eg hafi ekki verid eins og einhver algjor kukur. Allir i bekknum bunir ad fa einkunnirnar sinar nema eg.
Eg er i pinu filu ut i fronskukennarann minn, er alveg haettur ad vera dulla. I gaer thegar hann afhenti mer fronskuprofid mitt sagdi hann fyrir framan alla ad hann hafdi ekki gefid mer einkunn fyrir thetta thar sem ad nu er kominn januar og ellefu linur a fjorum timum er bara ekki nogu gott. En hann fekk sanngjarna utreid a einni bladsidu i skoladagbokinni minni, a islensku ofkors.
Thetta ospennandi blogg synir thad hvad thad er ekkert merkilegt i gangi herna thessa stundina.
Thad kom einhver kall herna i dag sem thau kaupa kjotid sitt af og hann var ad segja mer ad i gaerkvoldi hefdi verid eitthvad sma program um Island i sjonvarpinu en audvitad sa eg thad ekki enda hreinasta kaeruleysi ad vera ad horfa a imbann eftir klukkan 22, usss.
Madur fer bradum ad borda thannig ad eg aetla ad segja thetta gott.

Ykkar Bertileinen

10 comments:

  1. Hæ Berit!

    Alltaf stuð að lesa bloggin eftir sýrupennann hana systur mína! ;)
    Skilningsríki er greinilega ekki sterkasta hliðin hjá þessum kennara.

    Annars er ekki mikið að frétta héðan frekar en venjulega, janúar hefur aldrei verið í neinu uppáhaldi hjá mér - gerist aldrei neitt. Allir við sama heygarðshornið bara hehe

    Kveðja, Unns

    ReplyDelete
  2. Sæl kæra Berta
    Hér á Fróni er DIMMT amk þessa stundina (kl. er 8.27 að morgni og ég er rétt að byrja á fyrsta kaffibollanum... Þetta skánar svona undir hádegi. Annars er nokkuð hlýtt en ansi blautt. Handboltinn á auðvitað hug landans allan! kl 3 í dag keppum við á móti Norðmönnum en þeir verða aðlveg dýrvitlausir þar sem þeir verða að vinna leikinn skilst mér! (ég góð: "við keppum" - ég sem veit ekki mikið um handbolta ... kjaftur á keilunni - he he).
    Frakkar eru á einhverjum allt öðrum stað en Íslendingar - greinilega - þegar kemur að handbolta og einnig þegar kemur að því að stíga varlega til jarðar í nærveru sálar!!! var það ekki þannig orðað hjá einhverjum af okkar frábæru rithöfundum??

    Það er voða gaman þegar þú skrifar smá - þarf ekki að vera mikið né þrungið merkilegum atburðum. Ég kíki á bloggið þitt á hverjum degi og varð voðalega glöð í morgun þegar ég sá að það var komið nýtt...
    hafðu það gott kæra frænka
    Gunna móðursystir

    ReplyDelete
  3. Hvaða óttalega smámunasemi er þetta hjá þessum frönskukennara???
    Það liggur nú við að það sé smá vorfílingur í lofti hérna á suðvesturhorninu. Því er þó öðruvísi farið fyrir norðan, þar gerðist sá skemmtilegi atburður að ísbjörn gekk á land og er jafnvel talið að bangsi hafi ekki verið einn á ferð því þetta var bara unglingur. Nú er þyrla að leita á svæðinu. Þannig að kannski verður smá hlé á öllu Icesave-inu á meðan.

    Hafðu það gott elsku dúllan mín.
    Þín mamma

    ReplyDelete
  4. Iss ekkert taka þessa skrýtnu frakka of alvarlega bara svara með kaldhæðni... t.d. "Je vois que vous êtes un comédien". eða "ainsi ce qui, c'est la vie".

    Áfram Ísland
    Eyfi greifi

    ReplyDelete
  5. Ekkert kæruleysi og stífar kröfur. Hljómar ekki íslenskt enda erum við með allt niður um okkur í efnahagsmálunum og fáum því eðlilega bara lán á okurvöxtum!
    En eitt erum við góð í og það er handbolti. Leikum á morgun í undaúrslitunum kl 13 á íslenskum tíma við FRAKKA!! Hlýtur að vera sýnt beint í franska sjónvarpinu. Það lið sem vinnur þann leik leikur til úrslita á sunnudaginn en tapliðið um þriðja sætið sama dag. Nú hlýtur Mestack familían að setjast niður fyrir framan kassann og halda með...Íslandi!
    Þinn pabbi.

    ReplyDelete
  6. Ég er hálfgerður Frakki þegar kemur að handbolta - Ég ætla samt að fylgjast með á morgun - og tek undir með Greifanum og öllum hinum
    Áfram ísland!!!
    Þín mamma

    ReplyDelete
  7. Hæ Berts
    Já handbolti segirðu, kemur þér líklega ekki á óvart að ég er ekki búin að horfa á einn leik (en sá samt eitt mjög flott mark á lokamínútu hjá leik sem Ísland var reyndar ekki að keppa í). Já þetta er skammarlegt eeen já alltaf gaman að sjá bloggið þitt, megi næsta blogg koma sem fyrst, og því minna sem þú hefur að skrifa um því skemmtilegra. Finnst t.d. ekkert síðra að heyra um þennan dónalega kennara þinn heldur en e-a stórviðburði. Gott að þú fékkst útrás á skóladagbókinni en ekki manninum sjálfum samt;)
    Lífið á Íslandi er umvafið hinu árlega janúarþunglyndi þessa stundina auk þess sem skólinn er að komast á milljón aftur (njóttu þess meðan þú getur að vera fjarri okkar ástkæra MR) Svo er mín byrjuð að skokka aðeins svo lífið er farið að hafa smá tilgang aftur:)
    Á fimmtudaginn eru svo komnir fimm mánuðir Berta, pældu í því!!!
    Get ekki beðið eftir að knúsa þig í sumar en eftir það verður þér refsað hörkulega fyrir facebook-glæp þinn í vikunni, Erna Gull, Berta sumt bara verður ekki fyrirgefið.
    1000 knús til þín yfir hafið
    Marta

    ReplyDelete
  8. sammála brósa - ég bíð spennt eftir næsta bloggi, langar að heyra hvernig skíðaferðin var!

    knús

    ReplyDelete
  9. Sæl Berta mín
    hvað er að frétta? hvernig var á skíðum? það væri nú aldeilis gaman að fá fréttir
    kær kveðja
    Gunna móðursystir

    ReplyDelete