Sidasta helgi var aldeilis skrautleg.
A fostudeginum for eg i bio med skolanum. Myndin het L'affaire Farewell, sami leikstjori og gerdi myndina Joyeux Nöel sem var einmitt synd i kringum jolin i sjonvarpinu heima 2007. Hun var soldid flokin, atti ad gerast i Kalda stridinu. Mikil politik sem for ad mestu fyrir ofan gard og nedan hja mer. Eftir myndina kom svo leikstjorinn Christian Carion og svaradi spurningum ur salnum sem var mjog ahugavert.
Beint eftir bioid for eg med nokkrum stelpum ur bekknum til Lille thvi bekkurinn var ad fara i leikhus thar. Spistum a Quick sem er franskur McDonalds. Borgin var oll i jolaljosum og jolatonlist omadi um allt. Samt finnst mer vera svo litil jolastemning i ollum.
Vid saum tvo verk sem voru samt tengd saman og med somu leikurunum, ekki einu sinni hle. Fyrra verkid het Grammaire, i thvi var medal annars gert grin af franskri stafsetningu. Seinna verkid het 29 gradur i skugga. Thetta voru svona halfgerdir farsar. Fra 1800 og eitthvad. Eg skildi voda litid soguthradinn en thetta var samt gaman.
Um laugardagsmorguninn for eg i keilu. Heil 59 stig i thetta skiptid. Er buin ad komast ad thvi ad thad er mun audveldara ad hitta ef madur er med thunga kulu. Svo eg skipti 9 minni ut fyrir 11.
Um kvoldid var svo lagt af stad med hjonunum til Abbeville eftir mikil plon til ad hjalpa trudsa ad flytja. Thetta er um tveggja tima keyrsla thangad. Eg var buin ad hugsa mer gott til glodarinnar ad hjufra mig ein aftur i og hlusta a i-podinn. En thau voru buin ad leigja sendiferdarbil svo eg sat frammi a milli theirra alla leidina. Skellti svo sveittum BigMac i mig og skoladi honum svo nidur med einum flurry, klikkar ekki. Ekkert Metro rugl herna.
Vid gistum i gomlu ibudinni hans i skitakulda.Voknudum snemma til ad klara ad flytja. I hadegismat a sunnudeginum bordudum vid nautatungu. Ekkert svaka framandi en thetta var i fyrsta skipti sem eg smakkadi hana. Mer fannst aferdin frekar kinky. Og kjotid loftkennt samt alveg bragdgott. Vorum buin um fjogur og komum heim um sex.
Eg er bara buin ad vera i skolanum thessa vikuna. Var i dag ad klara verkefnid mitt i listatima. Sem var ad thessu sinni ad breyta Mona Lisu. Eg teiknadi a hana islenska thjodbuninginn.
Fengum svo medaleinkunina okkar yfir oll fogin i gaer. Eg var med 11 sem thotti mjog gott, uppskar klapp fra bekknum og laeti.
A fostudaginn er eg ad fara i fjogurra tima fronsku prof. En eg aetla ad spyrja kennarann hvort eg megi taka med mer ordabokina mina.
Eg gleymdi ad segja fra skrytnu pylsunni i sidasta bloggi.
Vid bordum alla vega mjog mikid af alls konar pylsum herna. Eitt kvoldid spurdi konan mig hvort eg vildi eins pylsu og hun helt a i kvoldmat. Eg sagdi ja enda syndist mer thetta vera oskup venjuleg, feit pylsa. Svo thegar konan er ad elda thetta gys tha ekki upp thessi rosalegi fnykur. Thegar eg for ad skera i thetta var mer haett ad litast a blikuna, alls konar bond og drasl. Tha rann thad upp fyrir mer ad thetta voru svinagarnir og fleira i theim dur sem buid var ad troda i skinn. Eg nadi samt naestum thvi ad klara en vont var thad.
Um naestu helgi er Telethon-helgi, godgerdardaemi. Mamman og trudsi eru voda oflug i thessu. Eg mun tha lika eitthvad vera ad stussast i thessu en eg veit ekki vid hvad, thad er um helgina.
I naestu viku er Lazertag med afs.
Allt i guddy. Franskan gengur svona lala. Skil mikid en talid er verra. Er byrjud ad lesa upphatt fyrir sjalfa mig a fronsku adur en eg fer ad sofa.
Gledilegan fullveldisdag i gaer!
Ykkar Berta
Wednesday, December 2, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Gott Berta mín að allt gengur vel - þú stendur þig greinilega vel í skólanum
ReplyDeleteNú er í planinu hjá mér að leigja myndirnar L'affaire Farewell og Joyeux Nöel (þegar allir eru heima).
Ég held að það sé nú alveg hægt að gera grín að franskri stafsetningu - mér finnst hún æði duttlungafull - þ.e. því litla sem ég hef kynnst. Þetta að langa til að hjúfra sig aftur í og hlusta á tónlist í friði er akkúrat hún Berta mín (í svona bílferðum amk, ég sé þetta allt ljóslifandi fyrir mér).
Varðandi pylsudæmið þá hefur örugglega verið mikill innmatur í þessum pylsum einhvers konar slátur þeirra Frakka (Bertrand sem er frá þessu héraði er vanur svona pylsum og svo var soðinn lambaheili algengur hversagsmatur heima hjá honum - bíddu bara)
- Það er bara nokkuð sniðugt að fara í keilu í leikfimi í staðinn fyrir 50 armréttur - eða hvað? .
_ Geymdu svo Monu Lísuna þína - svo við fáum að sjá
Kossar og knús
Þín mamma
Sæl litla krúsídúlla
ReplyDeleteGaman að fá smá fréttir af þér, þú afsakar hvað e-mailunum hefur fækkað en það verður gerð bót á því eftir próf:)
Ekkert smá flott hjá þér með einkunnirnar, get ei lýst stolti mínu.
Haha vá hvað ég hló þegar ég las þetta með pulsuna, veit hreinlega ekki hvort ég hefði getað troðið þessu í mig, þetta kalla ég sko hugrekki.
Svo er líka alveg á hreinu við munum skella okkur til Bylgju í keilu í sumar þannig að þú getir sýnt krafta þína.
Vertu súper dúper dugleg að blogga, það er ekkert betra en ferskt Bertublogg á köldum prófadegi
sakna þín eins og alltaf
1000 knús til þín yfir hafið
Marta
Hæ hæ kæra Berta mín
ReplyDeleteþetta er aldeilis margt sem þú ert að upplifa. Að ári má sennilega búast við pylsum úr ristlum þegar þú og mamma þín útbúið veislur ... maður verður að fara að setja sig í stellingar.
Þú ert greinilega rosalega dugleg í skólanum. Það kemur svosem ekki á óvart...
´
Hér á Fróni er búið að vera ansi kalt, ca -8 brrrrr. Smá snjóföl svo það er ekki eins mikið niðamyrkur. Eitthvað á að hlýna og rigna og svo rok held ég um helgina. Það er etv ekki mikið að marka endursagnir mínar af veðurfregnum þar sem mér tekst aldrei að halda athyglinni lengur en í 10 sekúndur.
Hafðu það gott ljúfan okkar
Gunna móðursystir
Hæ Berta mín
ReplyDeleteHaha, ég hefði kannski átt að vera búin að vara þig við þessu pylsum en þetta er eini franski maturinn sem frönskukennarinn minn varar okkur við. Sagði að þetta væri alveg óætandi! Það verður pottþétt farið í keiluferð þegar þú kemur, þó þú verður kannski búin að fá nóg af því;)
Alltaf gaman að heyra í þér!
Kveðja
Stúfur
Hæ elsku Berta mín
ReplyDeleteÉg get varla lýst því hvað ég er ánægð að sjá blogg, svo ég geti nú lesið eitthvað annað en þessar blessuðu skólabækur mínar.
Þessar pulsur hljóma nú ekki vel, en í minnsta lagi hefur þú þó mcdonalds.
Ég hlakka til að lesa næsta blogg
Sakna þín og vona að þú hafir það sem best!
-Hanna Sigga