Saturday, March 27, 2010

Nyir timar!

Nu er eg buin ad vera i tvaer vikur hja nyju fjolskyldunni.
Thad eru thau Edith, Laurent, Theo 91, Suzy 94 og ELie 00.
Okkur kemur rosa vel saman og thau eru otrulega naes. Og alltaf ad gera eitthvad.
Samt mega tjillud lika, ekkert stress.
Vid buum i baenum Hergnies sem er rett hja borginni Valenciennes. Eg var soldid hraedd fyrst og sa fyrir mer einhvern bondabae en svo er nu aldeilis ekki.
Svona semisveit. Svo tokum vid Suzy alltaf straeto i skolann sem er i odrum bae herna
rett hja. Hun er i einum bekk fyrir nedan mig.
Skolinn er finn. Hann er alveg glaenyr og folkid ekkert rosa anaegt med nyju bygginguna. Hann er svo alltof stor svo thad er erfitt ad skapa goda stemmningu.
Bekkurinn minn er lika finn. Allt odruvisi folk en var i gamla skolanum, sem er bara gott mal, thau voru svo tilgerdarleg eitthvad. Eg er buin ad fara tvisvar med nokkrum stelpum a McDo eftir skola, thar sem vid skellum i okkur is.
A laugardeginum fyrir tveimur vikum forum vid Suzy i bio a myndina Shutter Island, ad sjalfsogdu a fronsku. Thau syndu mer thorpid og svona. Daginn eftir forum vid svo asamt Laurent a fotboltaleik VA-Rennes, topudum reyndar. Hann er mikill fotbolta og tonlistarahugamadur, sem er gaman.
Svo var skoli.
Thau eru oll mjog miklir spilaahugamenn og lidur sjaldan dagur an thess ad vid spilum eitt gott spil. Edith meira ad segja buin ad stofna felag herna i baenum.
Um sidustu helgi forum vid Suzy til Lille, med lest og kiktum i budir sem var mjog gaman. Um kvoldid forum vid svo til vinafolks theirra i mat og spil.
Allir rosa ahugasamir um Island herna og dvol minni i France.
A sunnudeginum forum vid i sund um morguninn og um eftirmiddaginn forum vid til nagrannans i spil og kaffi.
Svo aftur skoli. Voda rolegt thar og litid ad gera. Tek stundum thann yngsta i enskukennslu sem er pinu fyndid.
I gaer for eg med listatimanum til Brussell a tvo sofn. Thad sama og eg for a fyrir jol en nu vorum vid med guide sem gerdi thetta mun ahugaverdara.
Svo i dag erum vid ad fara i brudkaup og a morgun er afs dagur.
Thetta gengur bara obboslega vel, gaeti ekki hugsad mer betri host-fjolskyldu.
Er buin ad skella tvisvar i ponnsur handa lidinu, lukkadist svaka vel.
Hef fra svo miklu ad segja en svo litinn tima.
Endilega kommentid;

Bertus

7 comments:

  1. Sæl kæra Berta mín
    Mikið gleður það mig að heyra frá þér (ég var náttúrulega búin að heyra um vistaskiptin hjá mömmu þinni og pabba, en ekki verra að lesa bloggið líka). Þú virðist hafa haft heppnina með þér að þessu sinni og betra seint en ekki. Gangi þér vel áfram og njóttu lífsins.
    kv Gunna móðursystir

    ReplyDelete
  2. Elsku Berta mín
    Þú ert greinileg hjá áhugasamri og góðri fjölskyldu og nú bætist bara í reynslubankann hjá þér.
    M.a.s. brúðkaup og allt - úll la la -
    Í gamla skólanum var keila og ping-pong á dagskrá í leikfimi- en ég held að það verði fótboltaspil í þeim nýja (eins og þeir voru með í Friends) ég sá það á netinu.
    Mér líst vel á þetta spiladæmi allt (ég sé þetta auðvitað frekar fyrir mér sem spil eins og trivial - fimbulfamb - og spil í þeim geira heldur en félagsvist- póker eða bridge!)- en hvað veit ég - En þetta á öruggleg vel við mína!
    Ætli við í Furugerðinu (verðum á Akureyri) reynum ekki að spilafíklast eitthvað í páskafríinu.
    Ástarkveðja,
    Þín mamma

    ReplyDelete
  3. Hæ Berta!

    Snilld að heyra að fjölskyldan sé svona góð, þótt að allt hefði líklega verið betra en hitt fólkið!

    Þetta hljómar allt mjög skemmtilegt hjá þér núna, þannig að vonandi heldur þetta bara áfram svona.

    Líka gaman að því að þú getur farið á fótboltaleiki með liðinu, það er örugglega ekki slæmt.

    kv - Dayman

    ReplyDelete
  4. Hæ Bertha :)

    Ég er feginn að heyra að allt gengur í haginn þarna úti og að fjölskyldan nýja sé svona góð!

    Mér heyrist á öllu að það sé ansi hlýtt í veðri hjá þér. Hérna heima er voðalega sumarlegt ef maður lítur út um gluggan en svo þegar út er komið fer ekki framhjá manni að hitinn er við frostmark.

    Allavega, vonandi gengur áfram vel og hafðu það gott :)

    Kv, Unnar

    ReplyDelete
  5. Gott að heyra að allt gengur vel og þú komin í góða höfn hjá þessari nýju fjölskyldu. Hlakka til að heyra nánar um þetta allt saman þegar þú kemur heim. Nú er að færast kraftur aftur í gosið á Fimmvörðuhálsi eins og þú getur séð á þessai vefsíðu: http://eldgos.mila.is/eyjafjallajokull-fra-fimmvorduhalsi/
    Finnur er staddur þar núna ásamt vinnufélögum, erum pínulítið áhyggjufull!! Hafðu það gott, þín föðursystir

    ReplyDelete
  6. yes! frábært að heyra að þú ert komin með nýja, og að því er virðist góða og skemmtilega fjölskyldu. manni stóð nú ekki alveg á sama með hitt liðið:-p njóttu nú síðasta hluta dvalarinnar í botn, þetta verður æði hjá þér.

    við litla fjölskyldan erum á siglufirði núna um páskana og var meiningin að brettast svolítið, en veðrið hefur ekki leikið við okkur, erum bara aðeins búin að komast upp í fjall, við kvörtum samt ekki, erum bara að innipúkast:-)

    ástarkveðja, Helga og co

    ReplyDelete
  7. Loksins fæ ég að heyra eitthvað frá þér! Ég var orðin strelluð um að þú værir týnd og tröllum gefin.

    Vííí hvað það er gaman að heyra að þú sért loksins komin til nýrrar fjölskyldu! og greinilega eitthverrar súper fjölskyldu ofan á allt.

    Ég veit ekki hvort þú sért búin að sjá tölvupóstinn sem ég sendi þér, en alla vegana þá er ég að fara að vinna í Danmörk í sumar og fæ því ekki að sjá þig þegar þú kemur heim :( Eeeen ég hitti þig eftir sumarfríið þar sem við getum skipst á reynslu sögum, þótt ég geti nú gefið mér það að þínar séu mun skemmtilegri en mínar..

    Hafðu það nú sem allra best þarna úti
    Hanna Sigga :D

    ReplyDelete