Sunday, October 4, 2009

Manudur!!!!

Nu er eg ein a fotum thar sem hjonin eru uti ad erindast held eg og allir hinir sofandi. Eg akvad thvi ad skjella einu bloggi a lydinn.
Vaegast sagt undarleg vika lidin og erfid. Eg aetla ad detta adeins i klisjuna og segja ad hun verid eins og russibani, upp og nidur. Eg veit ekki alveg hvad olli thvi. Nenni heldur ekki ad fara ut i tha salma her. Thad var eiginlega ekki neitt og thad sem var erum vid buin ad leysa okkar a milli.
Skolinn gekk vel. Stundaskrain min loksins komin a hreint eftir mikid vesen.
Aetladi ad skipt ur hop b i a en svo matti eg thad ekki. Svo a midvikudaginn atti eg ad vera i listatima i sidasta tima en hann fell nidur. Nema ad enskumaelandi deildarstjorinn var ekki latinn vita og thegar konan hringdi i hann ut af stundaskranni leit ut eins og eg hafdi bara skropad. En nu er allt komid a hreint.
Sidustu dagar hafa verid mjog godir og mer lidur bara askoti vel. Er samt pinu hraedd um ad thad komi annad svona bakslag en vona audvitad ad thad gerist ekki.
Held nuna betur a spodunum.
En a fimmtudaginn fyrir viku var farid med skolanum til Brussell. Borgin gaeti thess vegna alveg verid i Frakklandi, thad eru engin skil a milli landanna. Thangad var 2 tima keyrsla sem var bara noto. Forum a safn med myndum eftir Magrit eda hvad sem hann heitir nu. Thad er einhver voda fraeg mynd eftir hann thar sem sest i bakid a tveimur alveg eins monnum. Svo lika einhver pipu mynd. Svona surrealiskt daemi.
Forum svo a eitthvad nedarjardarsafn um borgina og audvitad var lika einhver frjals timi. Thetta var bara agaett samt ekkert sukkuladi keypt.
Um helgina var afs hittingur i Lille. Thar hittust allir 18 krakkarnir i minu chapteri. Gerdum einhver verkefni og raeddum um reynslu okkar hingad til i France.
Skodudum borgina adeins lika, mjog falleg. A laugardagskvoldinu fengum vid 40 minutur friar i tivolii.
I gaer for eg svo med trudmanni og hjonunum ad flytja draslid hans i nyju ibudina hans. Thangad var tveggja tima keyrsla og a leidinni hlustudum vid a sigur ros. Veit samt ekki hvort hann filadi thad.
Um kvoldid var svo spist kebab. Svo for eg upp i rum og horfdi a pirets of the... nr. 2 i ferda dvdspilara sem var megakosy.
Naesta laugardag forum vid konan og stelpan til parisar ad horfa a balletinn Giselle i operunni. Thad verdur suddalegt. Thurfti reyndar ad hafna rosa djusi Lille ferd med stelpum ur bekknum en hun verdur vonandi farin seinna.
Her er allt frekar rolegt. Farid ad kolna i vedri, komid nidur i svona 13-15 gradur. Eg aetla samt ekki ad kvarta. Vid erum vist askrifendur af dagbladi fyrir krakka sem eg glugga stundum i. Thar er alltaf sagt hverjar eru heitustu og koldustu borgirnar. Reykjavik er buin ad vera nokkrum sinnum sem kaldasta borgin med 1 gradu.

Vonandi gengur allt vel heima. Sakna allra.

Ykkar Berta

7 comments:

  1. Elsku Berta mín
    Það er sennilega bara ágætt að vera búin að fara í þennan fræga rússibana - þú ferð nú varla aftur í hann að ráði. Hérna heima er mest einhver Icesave þvæla í gangi daginn út og inn -mætti ég þá heldur biðja um súrrealistann hann René Magritte, sem málaði m.a. pípumyndina frægu sem þú talar um - á myndinni stendur skrifað: Ceci n'est pas une pipe (þetta er ekki pípa)(enda var þetta ekki pípa heldur bara mynd af pípu)- sneddý - og þetta fattaði hann fyrir rúmum 80 árum.
    Ástarkveðja - Þín Mamma

    ReplyDelete
  2. Hæ berta mín

    alltaf svo gaman að fá fréttir, ég hugsa svo mikið til þín og þessa ævintýris hjá þér. get rétt ímyndað mér að þetta sé svoldill rússibani, allt svo svakalega nýtt og öðruvísi - vona svo að ekki verði annað bakslag.

    vá, hvað verður magnað að fara á ballet í paris -öfund! svo fáum við að heyra af djúsí Lille ferðum síðar...

    ástarknús og kossar

    ps. lillan sendir kveðju úr bumbunni:-*

    ReplyDelete
  3. Hææ Berta!

    Ég öfunda þig að vera ekki á Íslandi, krepputalið ætlar engan endi að taka og núna verður kaldara með hverjum deginum, -3°c þegar ég kveikti á bílnum í morgun :(

    Allavega gangi þér bara allt í haginn þarna úti og svo færðu bréfið frá mér og Degi mjög fljótlega :)

    Kv, Unns.

    ReplyDelete
  4. amma og afi KópavogiOctober 6, 2009 at 11:50 AM

    Kveðja frá Ömmu Lillu og afa Gumma:
    Kæra Berta okkar
    Við höfum hugsað mikið til þín og amma Lilla dreymdi þig á hverri nóttu framan af og þú varst mikið í rauðri peysu(rauður litur í draumi táknar ma lífsorku og viljastyrk). Erum stolt af dugnaðinum í þér og vitum að þetta ár verður þér dýrmætt í reynslubankanum.
    Saknaðarkveðjur, amma Lilla, afi Gummi.

    ReplyDelete
  5. Hæ Berta

    Gaman að lesa það sem á daga þín hefur drifið í Frakklandi. Þetta er þvílík reynsla sem þú ert að næla þér í þarna og þú munt búa að þessu alla ævi.

    Hef einu sinni komið til Frakklands og mér fannst það geðveikt. Það sem var á boðstólnum fannst mér reyndar ekki upp á margar loðnurnar, aðeins of framúrstefnulegt fyrir mig. Eintóm paté og gúrkur með einhverjum bólum á. Vona að það sé eitthvað ætilegra hjá þér.

    Hafðu það gott og vertu móttækileg fyrir nýjungum. Það er nauðsynlegt þegar maður er að kynnast nýrri menningu.

    Kveðja frá Svíþjóð

    Eyjólfur Héðinsson

    ReplyDelete
  6. Elsku Berta
    Mikið er gaman að lesa pistilinn þinn. Það verður nú ekki slor að fara á Gieselle í Parí! Vá...Skemmtu þér rosalega vel.
    stórt knús frá Gunnu móðursystur

    ReplyDelete
  7. Elsku Berta
    Alltaf er nú jafn gaman að lesa bloggin þín. Ég mundi ekki hata það að vera núna í 13-15 stiga hita í staðin en þessu grámyglu veðri.. Eða að vera að fara til París á balletsýningu jidúddamía hvað ég öfunda þig!

    Hafðu það nú sem best og skemmtu þér VEL á ballettinum.

    Kveðja Hanna Sigga

    ReplyDelete