Tuesday, September 22, 2009

Tvaer og half vika i Frakklandi

Astaedur bloggleysisins eru ymsar. Eg kemst ekki alltaf i tolvuna og thad tekur alveg agaetan tima ad gera thetta. Svo eru dagarnir bara svo stuttir.
Thad er ekkert spes af mer ad fretta.
Um helgina sidustu fyrir rumri viku gerdi eg fatt held eg. En a sunnudeginum for eg med lidinu a einhvern skrytin og ronalegan floamarkad. Eg tok bjartsyn med mer monninga en eyddi engu. Fekk samt brudu. En thessi floamarkadur er vist arlegur vidburdur. Hann endar svo thannig ad morg hundrud litlum brudum er hent ur einhverjum kirkjuturni. Svo berjast allir um ad gripa eina. Thetta var alveg frekar brutal, gleraugun voru kyld af kallinum. Sidan var safnast saman a einhverju torgi thar sem risavaxin bruda var brennd a bali vid undirspil midaldartonlistar eda eitthvad. Svo voru fullt af leikurum tharna til ad skapa midaldarstemningu og donsudu med.
I skolanum gerdist bara ekkert merkilegt. Eg er med svo skringilega stundaskra, hun er alltaf ad breytast. Svo er skipt i hopa a og b og viku a og b. Eg bara botna ekkert i henni.
A fostudagskvoldid forum vid stelpan ad passa hja folkinu vid hlidina. Eg hafandi gleymt litla kebabaevintyrinu minu i sumar thadi eitt stykki svoleidis. Nadi samt ad troda naestum ollu oni mig.
A laugardaginn var audvitad skoli.Einn sogutimi og svo ithrottir sem eru samt annars stadar i baenum. Thad var bara fint. Tek thad samt til baka ad thad se agaett ad hafa skola a laugardogum. Eg myndi ekki saetta mig vid thetta ef eg vaeri frakki. Frekar myndi eg sleppa thessu heilaga frii eftir hadegi a midvikudogum.
Svo for lidid ad horfa a mynd i menningarsentri hverfisins en hun var vist tekin upp i hverfinu. Skildi audvitad frekar litid samt alltilaej.
Thad var ad sjalfsogdu spist um kvoldid. Einhverjar spes pylsur sem eru vist eitthvad nordlenskt fyrirbaeri. Svo var theim trodid i braud og eg sletti audvitad sosu og salati a herlegheitin. Bara kasjual og kosy.
Um kvoldid forum vid svo til Lille, samt ekki kallinn, ad horfa a einhverja flugeldasyningu og lobbudum i gegnum tivoli i leidinni.
A sunnudaginn forum vid svo a hestahatid. Thad var agaett nema bara allt of langt. Eg fekk lika ad fara a bak i nokkrar minutur.
Thar hitti eg finnska skiptinemastelpu og vid vorum eitthvad ad spjalla. Mjog naes ad hitta einhvern sem er i somu stodu.
Nu eru tveir braedur i vidbodin komnir heim, 23 ara og 27 held eg. Thannig ad nu erum vid sjo herna. Their eru agaetir hef samt ekki talad mikid vid tha. Eg held i haldi mig bara vid trudsa, sem skellti i smakokur i dag. Ekki amalegt.
Eg fekk lika kassann fra mommu og pabba i gaer. I honum var m.a. ulpan min, fot, arsbyrgdir af ymsum baetiefnum og nommum. Svo ma ekki gleyma edalaedadunssaenginni hennar mommu.
Nuna er verid ad gera vid badid herna thannig ad eg tharf ad fara i sturtu annars stadar naestu daga.
I gaer for eg i fyrsta liffraedi timann minn. Thar gerdum vid mjog skemmtilega tilraun. En vid attum ad smakka mismunandi gerdir af coladrykkjum og segja hvad var best og hvad vaeri alvoru coke. Adeins annad level en madur er vanur heima.
I dag var svo bara skoli. A morgun, held eg, tek eg svo metro-id ein i og ur skolanum. En sidustu daga hefur mer verid fylgt til ad kenna mer leidina.
A fimmtudaginn fer eg svo til Brussell med skolanum i heilan dag. Kaupi vonandi sukkuladi.
Svo um helgina er afs-hittingur fra laugardegi til sunnudags i Lille. Tha get eg loksins fengid ad sja Lille almennilega. Thad verdur lika gaman ad heyra hvernig hefur verid hja hinum.
Mer lidur bara vel. Hef ekkert ad kvarta yfir. Sakna allra samt rosa mikid samt engin heimthra i gangi.
En kommentid endilega, thad er virkilega gaman ad lesa thau og hlaeja.

Berta

Berta

10 comments:

  1. Hææ Berta! :D

    Hehe ég vissi að þú myndir fá leið á því að vera í skólanum á laugardögum ;)
    Alltaf jafn gaman að lesa þetta og gott að þér líður bara vel!
    "edalaedadunssaenginni" Þetta orð leit fyrst út eins og argasta bull en mér tókst nú að skilja þetta fyrir rest hehe.

    Kær kveðja, Unns (Ef þú smellir á nafnið mitt sérðu eina mjög asnalega mynd af mér sem var tekin í sumarbústaðnum núna um helgina heheh)

    ReplyDelete
  2. Hæ BG
    Þetta hljomar spennandi en hvernig voru smákökurnar hja trúðsa? Á ekki að fara að skella í pönnsur? Er liðið farið að slefa yfir rfisberjasultunni og bláberjasultunni úr Hestvíkinni á Þingvöllum? Er að láta prenta slatta af myndum, sendum þér svo fáeinar.
    Ástarkveðjur
    pabbi

    ReplyDelete
  3. Hæ Berta mín

    Úff hvað það er gott að sjá / lesa hvað það er gaman hjá þér og alltaf nóg að gera. Veit samt ekki alveg með að hafa skóla á laugardögum og breytilega stundatöflu en annars hljómar þetta mjög spennandi allt saman.

    Ég bíð spennt eftir myndum! :D

    Knús og kossar
    Hanna Sigga

    ReplyDelete
  4. Elsku Berta mín - Gott að það er að komast einhver mynd á þetta. Mestack fjölskyldan virðist mjög almennileg.
    Það er nú aldeilis fínt að næla sér í smá miðaldarstemningu með öllu tilheyrandi - Það væri nú eitthvað fyrir bræður þína.
    Athyglisverður líffræðitími - hann minnir mig bara á líffræðitíma þegar ég var í menntó og við vorum að læra um bragðlaukana og máttum velja á milli eyrnamergs og Campari til finna rammt bragð.
    Ástarkveðja
    Mamma

    ReplyDelete
  5. Hæhó Berrí!

    Gott að heyra að þú ert farin að settlast þarna inn. Fólkið sem þú ert hjá virðist allavega vera næs, sem er náttúrlega mjög mikilvægt.

    Annars verður örugglega geðveikt að fara til annars lands með skólanum, soldið öðruvísi en hérna á klakanum!

    Kærar kveðjur,
    Dagur.

    ReplyDelete
  6. Vei, gaman að sjá nýja færslu! ótrúlega spennandi að fylgjast með þessu hjá þér. heppin þú að fá pakka frá mömmu, það hefur verið æði. njóttu lífsins.

    risaknús

    ReplyDelete
  7. Elsku Berta
    Gaman að fylgjast með þér úr fjarlægð. Við erum alltaf að hugsa um þig.
    Hafðu það sem best í France.
    Amma Berta og afi Dúddi

    ReplyDelete
  8. Sæl elsku Berta
    Nú geri ég 3ju tilraun að setja inn klausu á bloggið þitt. Ég veit ekki hvað er í gangi!
    Í gær setti ég saman pistil sem ekki skilaði sér þar sem ég var stödd í París! Hvílík borg! Ég var stödd í nágrenni Signu og Louvre ekki langt undan. Veðrið var frábært 20°, sólskin og logn! Allir meira og minna sumarlega klæddir. Það verður nú ekki dónalegt þegar þú heimsækir París –örugglega einhvern tíma í náinni framtíð – og getur slegið um þig á frönsku! Ég og félagar mínir vorum öll meira og minna mállaus á frönsku og varla fær um að bjóða góðan daginn (amk var það ein frúin í hópnum sem bauð góðan daginn en sagði góða nótt!!).

    ReplyDelete
  9. Nú þar sem þetta gekk svona vel (þ.e. að pósta klausuna) þá held ég áfram.
    Á einum veitingastaðnum sem við heimsóttum fengum við mjög góðan eftirrétt sem mér datt í hug að þú gætir etv kynnt þér hvernig er búinn til – þú sem ert svo flínk að baka. Svo kennir þú okkur þetta þegar fram líða stundir...

    “Traditional seasonal fruits clafoutis” það er þetta Clafoutis sem er lykillinn held ég.
    Þessi sem við fengum var með jarðaberjum, niðurbrytjuðum ferskum fíkjum og fleiri berjategundum held ég. Etv eru ávextirnir meðhöndlaðir áður en þeir eru settir í grunna eldfasta “serving dish”. Búin er til einhvers konar eggjahræra og henni hellt yfir. Herlegheitin eru bökuð í ofni og borið fram volgt og flórsykri (held ég) stráð yfir áður en borið er fram... Vola! Mér fannst þetta svakalega gott...

    Það verður gaman að heyra hvort þetta fyrirbæri sé þekkt á þínu heimili!
    Kær kveðja frá Gunnu móðursystur.

    ReplyDelete
  10. Cool and I have a tremendous provide: What Was The First Home Renovation Show whole house remodel cost

    ReplyDelete