Ligg nu upp i rumi ad skrifa blogg og hlusta a Let it be me med Bob Dylan, takk fyrir i-podinn og playlistann Dagur minn.
Annars hefur fatt a mina daga drifid. Hangi bara heima allan daginn og les Harry Potter eda horfi a biomyndir. A manudagskvoldid for eg reyndar med stelpunni a hestaaefingu, horfdi samt bara a.
I gaer var svo eitthvad kjot i hadegismat og svona graenmetisgumms med. Thar sem konan er dagmamma eru alltaf svona ca 5 litlir strakar herna a daginn. Svo i gaer i hadegismatnum lamdi konan einn 2 ara strak thrisvar frekar fast a hondina og oskradi a hann bara af thvi hann gat ekki bordad meira og slefadi matnum sem hun var buin ad troda upp i hann ut ur ser. En thetta er vist bara normid herna.
Lidid sagdi mer i gaer ad i Frakklandi vaeri vaninn ad borda fisk i hadegismat a midvikudogum en baettu svo vid hlaejandi "en ekki vid, haha".
I gaer for eg med stelpunni og trudsa i bokabud. A leidinni keyrdum vid framhja sirkus svo strakurinn sagdist aetla ad fara med mig einhvern timann ad sja sirkus herna.
Siden i gaermorgun aetladi eg ad fa mer ad drekka og tok bara eitthvad glas med mynd af eyrnaslapa ur skapnum. Kemur tha ekki trudmann og bannar mer ad nota thad af thvi ad thetta var glasid hans. En svo gaf konan mer bangsimonglas sem verdur tha glasid mitt.
Eg held ad eg se loksins buin ad leysa radgatuna um afhverju eg var sett i herbergi med stelpunni fyrstu tvaer vikurnar tho ad herbergid mitt se laust. Thau sogdu ad thad vaeri af thvi ad yngsti brodirinn sem er 23 ara vaeri i frii i S-Frakklandi. En eg skildi aldrei hvad thad kom malinu vid. Thar til ad eg fattadi ad thessi aumingja 23 ara drengur er vanur ad sofa i sama herbergi og 13 ara systir sin. Og nu er hann i frii svo eg sef i ruminu hans. Greyid madurinn.
En thad er lika eitthvad skemmtilegt buid ad gerast herna . I morgun forum vid Marie asamt tveimur krokkum sem hun var ad passa ad skra mig i skolann. En thad er einkaskolinn Saint Remi. Eg var mjog satt med hann, gamall og flottur. Eg er mjog fegin ad thurfa ekki ad fara i ronaskolann Baudilaire.
Madurinn sem vid toludum vid var mjog naes og taladi ensku, loksins. En eg fer a bokmenntabraut, annad ar. Vid voldum timana saman. Eg fer mikid i ensku og fronsku, sma staerdfr. sem er tolvuvisindi og vist frekar lett, pinu liffraedi og edlisfraedi, slatti af listum sem eg held ad se myndlist. Svo lika einhver saga. List bara vel a hana.
A midvikudogum er eg buin 12 og A fostudogum byrja eg eftir hadegi og svo alltaf einhver got. Svo kemur rusinan i pylsuendann. Er min ekki i skolanum a laugardogum. Eg er samt alveg satt thar sem eg nenni ekki ad hanga heima.
Langar lika i aukafronskutima. Svo tharf eg ad fara ad huga ad einhverju sporti til ad stunda.
En nu er eg ad fara ad hlusta a tonlist og svo i bud ad kaupa skolabaekur. Veit ekki hvad eg
myndi gera ef eg thyrfti ad hanga herna inni mikid lengur. Hef haft fatt annad ad gera en ad velta mer upp ur heimthranni. Mig langar lika svo ad hitta annad folk og jafnaldra mina. Eins gott ad thay seu naes.
Eg veit ad thad var eitthvad vesen med ad kommenta en eg er buin ad laga thad.
Plis kommentid, thau geta dimmu i dagsljos breytt og endilega sendid bref.
Sakna allra svaka mikid.
kv. Berta
Wednesday, September 9, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Hæ Berta!
ReplyDeleteMjög gaman að lesa þetta. Greinilega margt öðruvísi þarna úti heldur en hér heima! :)
Gott að þú ferð ekki í þennan "rónaskóla" heheh..
Hafðu það sem best, kv, Unnsi bró :o)
Jæ jæ - það er greinilega að koma einhver mynd á nánustu framtíð þína í France. Frakkar eru nokkuð frægir (!) fyrir uppeldisaðferðir sínar sem þú hefur þegar fengið þef af... það er vont en það venst geri ég ráð fyrir. Það verður gaman fyrir þig að byrja í skólanum og ég er viss um að þú eignast fljótt vini, krakka til að eiga gæðastundir með. Svo er það sportið! mikilvægt að hreyfa sig það veist þú betur en margur annar. Það er etv ráða að hendast út með ipodinn og skokka svolítið??
ReplyDeleterisaknús frá Gunnu móðursystur.
Hæ aftur - skil nú ekki alveg hvers vegna ég kem inn sem Kyrjurnar!! - ég er eitthvað fötluð þegar kemur að því að pósta þessi skilaboð - en ég er nú Kyrja og óttaleg bryðja svo þú ættir ekki að vera í vandræðum með að tengja...
ReplyDeletekv Gunna moster
Elsku Berta mín
ReplyDeleteÉg bara hló - og ekki veitir manni af því.
Ekki er gott að heyra að það sé verið að slá börnin en viðgengst samt víða.
Hann er greinilega ungur í anda glaseigandinn (er hann ekki tuttuguog-eitthvað).
Gott að skólinn sé að fara að byrja og engan viljum við rónaskólann!
Knús frá mömmu
Hæ Berta mín.
ReplyDeleteÞessi blogg þín breyta minni dimmu í dagsljós svo það er nú eins gott að þau verði mörg!
Bangsímon er miklu flottari en eyrnaslapi, Trúðsi veit ekki hverju hann er að missa af.
Vonandi verður fyrsti skóladagurinn skemmtilegur og kynnist eitthverjum fyndnum frökkum.
Ef þú ferð út að skokka passaðu þig þá að villast ekki og enda í eitthverju vitlausu húsi, miðað við þessar uppeldis aðferðir þá veistu ekki hvernig Frakkarnir mundu taka á því ...
Þúsund knús og kossar Hanna Sigga
Hæ elsku litla systir.
ReplyDeleteGott að heyra að I-podinn kemur að góðum notum, shuffle-inn þinn klikkar líka ekki í ræktinni.
Endilega haltu bloggunum áfram, mjög gaman að lesa þau. Annars verður þetta, eins og allir hafa sagt, miklu skemmtilegra þegar þú byrjar loksins í skólanum.
Trúðsi hljómar frekar skrítinn en hann er vonandi bara smá krydd í tilveruna hjá þér þarna úti!
Ég hefði nú haldið að þú værir manna ánægðust með að fá að komast í sirkus, finnst líklega fátt skemttilegra en trúðar og creepy sirkusfólk ef ég þekki þig rétt ;).
Síðan er náttúrulega bara eitt sport sem kemur til greina - Frjálsar!
kv. Dagur.
Sæll minn betri helmingur
ReplyDeleteSammála síðasta ræðumanni, vertu dugleg að blogga!
Skólinn hljómar ótrúlega vel, myndi gefa nýra fyrir að fá að skipta við þig um fög. Varðandi barsmíðar múttu þá er mér að mæta ef hún lemur þig! Haltu áfram að vera dugleg og jákvæð, þetta verður æði þegar skólinn byrjar
1000 knús yfir hafið til þín
Marta
Hæ BG
ReplyDeleteBúinn að skoða heimasíðu Saint Remi sem virðist mjög spennandi skóli þótt ég skilji ekki frönsku. Segðu okkur endilega meira frá honum þegar þú ert byrjuð. Svo máttu líka segja okkur við tækifæri frá gæludýrunum og fleiri sögur af trúðsa! Marie sagði okkur Bertrand frá skólanum í símtali í dag og taldi B hann mjög góðan kost. Meira síðar.
Bæ pabbs
Hæ sæta frænka
ReplyDeleteþetta er nú ansi skrautleg fjölskylda, ég elska þegar þú talar um trúðsa, hihi! það verður gaman hjá þér að byrja í skólanum, maður nennir ekki að hanga bara heima allan daginn. vertu áfram dugleg að skrifa, gaman að lesa um frakklandsævintýr þín.
knús og kossar, Helga frænka
vá væri til í að vera í skólanum þínum. hljómar mjög vel. þessi fjölskylda hljómar samt mjög mjög spes, vona að þau skáni. :)
ReplyDeletekv urður