Tuesday, May 18, 2010

Haeho!





Eitt og annad hefur a sidustu daga mina drifid.
Enn manudur eftir af skolanum en thad haetta allir fyrr, eg byst vid thvi ad haetta
i kringum 10. juni. Skolinn er finn thannig sed, er reyndar dottin i thvilikan tjillgir, haetti meira ad segja i ollum liffraeditimum. Svo detta oft dagar ut af thvi ad krakkarnir eru i semiprofum, sem er mjog noto. I thessari viku er eg til daemis bara med tvo heila skoladaga.
Um tharsidustu helgi skruppum vid adeins i burtu, i ibud vid strondina sem thau fa stundum lanada. Vedrid var reyndar glatad en thetta gerdi manni bara gott, forum medal annars a heila fimm floamarkadi! Svo var mikid bordad, en afinn er allur i thvi ad fa mann til ad borda sem mest.
A sidasta fimmtudag forum vid Suzy til Valenciennes og kiktum a crazy nights i bio.
Um helgina var bara tjillad. Laugardagskvoldid for eg i afmaeli hja einni i bekknum.
A sunnudeginum forum vid Suzy og Edith til Lille af thvi ad hun er ad fara i thrja manudi til Kanada i haust med afs, svo vid Edith vorum bara ad dulla okkur a meda.
Kiktum a safn og pikknikkudum, ekki slaemt thar sem vedrid var aedi og ju forum audvitad lika a gigantiskan floamarkad thar sem var einmitt til solu islensk lopapeysa.
Annars fer ad styttast i ad madur fari heim, sjitt, hlakka svo mikid til.
Spurning hvernig eg fer svo ad thvi ad droslast med allan farngurinn heim, thad reddast einhvernveginn.


Berthildur

6 comments:

  1. Gott að vera í tjillgírnum af og til og hafa það bara næs þennan tíma sem eftir er í France. Njóttu þess!

    Þú hlýtur að verða fastagestur í Kolportinu þegar þú kemur heim, fyrst þú ert dottin svona í flóamarkaðsfílinginn - eða jafnvel með eigin bás!
    Ég þarf víst ekki að taka fram hvað við hlökkum til að fá þig heim!
    Ástarkveðja,
    Þín mamma

    ReplyDelete
  2. Jójó
    Gaman að sjá að þú ert enn í blogginu, um að gera að nýta chilldagana í það, það gleður mitt hjarta að lesa e-ð sem er ekki til prófs:)
    Já og NJÓTTU þess að slaka á meðan þú getur...Það styttist óðum í að þú komir heim (thank God) en reyndu að nýta þann stutta tíma sem eftir er í botn.
    Hlakka endalaust mikið til að sjá þig
    Marta

    ReplyDelete
  3. Já þetta styttist stöðugt, bara 7 vikur í heimkomu, njóttu þeirra vel. Það verður skrýtið fyrir þig að fara að tala íslensku aftur eftir að hafa ekki hitt Íslending í 10 mánuði. Skv BBC á hitinn hjá þér að fara í 25° meðan hann á að ná 10° í Reykjavík um helgina.
    Dagur varð stúdent í gær, héldum upp á það með sushi veislu heima. Annars bara róleg hvítasunnuhelgi hér en missum náttlega ekki af úrslitaleiknum í meistaradeildinni í kvöld milli Bayern Munchen og Inter Milan sem fram fer í Madrid.
    Þinn pabbs

    ReplyDelete
  4. Hæ Bertill!

    Maður er farinn að hlakka heilmikið til að fá þig heim, aldeilis farið að styttast í það :)
    Ekkert merkilegt að frétta af mér kannski annað en það að ég var að selja Bimmann minn áðan!

    Allavega, nýttu þennan tíma sem eftir er vel og hafðu það gott

    Kv, Unns

    ReplyDelete
  5. Sæl elsku Berta
    nú ætti að vera sumar og sól hjá þér nánast stöðugt... Afi þinn og amma voru að fara í sína árlegur reisu í Skagafjörðinn í morgun og verða þau í viku. Þau hlakkaði mikið til. Amma þín og nafna er alltaf að tala um að nú fari Berta litla að koma heim aftur og svo segir hún mikið verður það nú gott. Ætli Sigga slái ekki bara upp veislu fyrir okkur öll svo við getum fagnað öll saman!
    Já það verður yndislegt að fá þig aftur. Það er orðið tímabært að þú kynnist henni Þóreyju litlu og svo verður drengurinn líklega kominn í heiminn...
    hafðu það gott og njóttu dvalarinnar til hins ýtrasta
    kv Gunna móðursystir

    ReplyDelete
  6. hey sæta

    bara smá hæ og bæ

    risaknús frá okkur Þóreyju

    ReplyDelete