Sunday, November 22, 2009

Saelt verid folkid

Nuna er min buin ad vera i ca tvo og halfan manud i Franci.
Loksins fann eg eitthvad til ad aefa. For a fyrstu frjals ithrottar aefinguna mina a fimmtudaginn fyrir rumri viku. Leist lika svona aldeilis vel a thetta.
For svo aftur i gaer og i dag. Hvad djofulsins vitleysu er eg buin ad koma mer i hugsadi eg med mer medan eg hlunkadist upp einhverja brutal brekku i morgun klukkan 10.
Gaerdagurinn var samt enn erfidari. Thjalfarinn var buin ad rada i hring alls konar grindum og dynum og doti. Svo hljop madur milljon hringi um thessa braut, var vid thad ad deyja. Tokst meira segja ad detta um einhverjar keilur fyrir framan alla. Eg mun maeta a aefingu thrisvar i viku: fimmtudag og laug. og sunnudag.
Skolinn er agaetur. Fekk 12/20 ur soguprofinu bara fyrir ad reyna adeins.
Svo tharf eg ad lesa mini-utgafu af Candide eftir sjalfan Voltaire og mer er sagt ad hun se med eindaemum leidinleg.
I ensku gerdi eg sketch med nokkrum stelpum thar sem eg var gothari.
I ithrottum er eg i keilu alveg fram ad jolum. Thad er nu meira bullid.
Fekk heil 32 stig sidast.
Eg gerdi malfraedifronskuverkefni sem var litid mal med ordabokina ad vopni. Var reyndar i thrja tima ad klara thad.
Eg er buin ad komast ad thvi ad franskan er faranlegt mal. Franskir krakkar kunna ekki einu sinni ad skrifa einfoldustu ord og thurfa oft ad spyrja kennarann.
Kagglinn atti afmaeli a fimmtudaginn svo vid forum ut ad borda i tilefni thess.
Meira hvad vid forum alltaf a flokna stada. Med alls konar tilbod og vesen.
Fekk mer pizzu.
En i kvold verdur vist almennilega haldid upp a thad herna heima med ollum herlegheitunum.
I dag for eg i bio med stelpunni a Ljosaskipti 2. Hun var betri en fyrri myndin tho thad thurfti ekki mikid til. Og a fronsku. Thad fer svo i taugarnar a mer ad thau dobbi allt, eg meina hversu sjalfhverfur er haegt ad vera. Enda vil eg meina thad ad frakkar seu soldid eftir a i humor og grini.
Eg var i enskutima a fostudaginn og vid attum ad koma med stadalimyndir um Breta.
Krakkarnir sogdu: ofurkurteisir( please, alltaf), alltaf rigning thar, tala ekki erlend tungumal, og ofurstoltir. Mer fannst thetta bara fyndid af thvi ad thetta er allt thad sem eg hugsa um Frakka.
Alltaf s'il tu plait vid ollu og alltaf merci. Og vist eg er byrjud ad gagnryna Frakka tha aetla eg ad baeta thvi vid ad their se faranlega dramatiskir og gera vesen ut af ollu.
A fostudaginn i naestu viku er svo bio med skolanum um daginn og leikhus um kvoldid.
Veit reyndar ekki hvad vid erum ad fara ad sja.
Jolin ad nalgast samt enginn stemmari i loftinu. Kvidi theim ponsu en samt ekki of.
En aetla ekki ad hafa thetta lengra i bili.

Berthildur

11 comments:

  1. Hæ ma petite chou
    Damn ég er ánægð með að þú hefur loks sagt skilið við dansinn og farin að æfa e-ð af viti, þú kemur svo bara í ÍR í sumar;)
    Ammóið var í gær og ég gróf upp kortið frá þér í fyrra(snökt snökt) veit ekki hvort þú mannst eftir níðnum sem þú samdir en ég hló í gær þegar ég las hann:)
    Fékk bók frá drengjunum sem heitir "stórskemmtilega stelpubókinn" en hún inniheldur ALLT sem stelpur þurfa að kunna/vita m.a. nokkra frasa úr frönsku, stenst ekki mátið að koma með einn fyrir þig: Bonjur, ma petite chou, t'as passé un bonne journée? (flestir frasarnir innihalda "chou")
    Er mega sátt með árangur þinn í sögu og er ekki frá því að þér gangi bara betur í henni á frönsku en íslensku (ekki slæmt það). Pældu í því að næst þegar við tölum saman (þriðjudag)verð ég bara orðin fullorðin!(fæ smá jakk-hroll við að skrifa þetta)
    en jæja, revenonsa nos moutons
    1000 knús til þín yfir hafið
    sakna þín suddalega mikið þessa stundina
    þín vinkona
    Marta

    ReplyDelete
  2. hehem þú afsakar þetta umfram-N í bókin;)

    M

    ReplyDelete
  3. Hæ litli kálhausinn minn;) Alltaf gaman að lesa bloggin frá þér! ég var svo ekki að kveikja á ljósaskipti 2, berta hver segir svona? það verður hópferð í bíó á þann hrylling eftir prófin. Okkur mr stelpunum finnst svo fyndið að þú ert í keilu á meðan við erum að þræla okkur út í stöðvaþjálfun eða hlaupa í hálku:( ekki sagðir þú þína skoðun á bretum þar sem ég veit að þú hefur ,,mikið" álit á þeim;D þú mátt síðan endilega fara að svara tölvupóstinum!! hlakka til að heyra frá þér og vonandi líður þér sem best.
    feeeeitir kossar
    Hólmfríður

    ReplyDelete
  4. Elsku Berta mín
    Gott þetta með frjálsurnar - þykist vita að þær séu eitthvað fyrir þig!
    - ég kalla þig góða i sögu og það á frönsku(er þetta ekki bara eplið og eikin?). - Frakkar eru greinilega ekki með íslenska "þetta reddast" syndromið sem við þekkjum svo vel.
    Ástarkveðja
    Þín mamma

    ReplyDelete
  5. Sæl kæra Berthildur ...
    nóg að gera heyrist mér. gott að reyna svoldið á sig - minnir mig á þegar maður var í den sendur í kringum tjörnina óundirbúinn. Það var bara öskrað á mann hlaupa, hlaupa... og maður hljóp og hljóp þangað til maður var að niðurlotum komin og komin með blóðbragð í munninn. En þú ert nú örugglega í betra formi en maður var þá. Maður var hálfgerður sófasveppur... það var ekki "inni" að hreyfa sig of mikið í þá daga.
    Hafðu það gott ljúfan og vertu dugleg að takast á við breytileika heimsins - mannskepnan er undarleg og því lengra að heiman sem maður er þeim mun undarlegri finnst manni hún og vice versa...
    Gunna móðursystir

    ReplyDelete
  6. Hææææ Bertholdt.

    Ánægður að heyra þetta með frjálsar, þetta er lúmskur gamall draumur að rætast hjá þér held ég. ;)

    Ég er að dúndra saman einu stykki bréfi til þín sem þú vonandi færð fljótlega. Vona að allt gangi vel hjá þér.

    kv. Dagur

    ReplyDelete
  7. Mon Dieu!
    Frakkar eru greinilega klikk og þú færð alveg einstaka lífsreynslu í þessu ævintýri öllu.

    Trikkið í keilunni er að reyna að halda úlnliðnum eins beinum og þú getur (nánast halda undir kúlunni þegar þú sleppir henni), snúa aðeins rangsælis upp á höndina þegar þú ert að fara að sleppa til að fá snúning (enda í stöðu eins og þú sért að fara að heilsa einhverjum),losa þumalinn á undan hinum puttunum og klára sveifluna alla leið eftir að þú hefur kastað.

    Baráttukveðjur... Eyfi frændi

    ReplyDelete
  8. Hæ Berit!

    Ég held að þú plummir þig vel í freesports, enda ekki svo ólík Gyðu Sól í hegðan og háttum (Djók ..;)).

    Annars er alltaf gaman að lesa bloggin þín og svo er bréf tilbúið sem ég ætla að henda í póst á morgun! :)

    Kveðja, Unnar.

    ReplyDelete
  9. Ég las kommentið hans Eyfa mjög vitlaust fyrst eða svona: ....Trikkið við KELLUNA er að halda úlniðnum eins beinum og snúa aðeins rangsælis upp á höndina....... .. losa þumalinn...osv frv.
    Þannig að ég hélt að hann væri að stinga upp á að þú færir í einhvers konar glímu við hóstmömmuna.
    Þín mamma

    ReplyDelete
  10. Hæ BG
    Allt við sama hérna megin. Þingmenn gera sitt til að ýta undir skammdegisþunglyndi þjóðarinnar með endalausu lýðskrumi um "icesave".
    Flott að vera þrisvar í viku í frjálsum og chilla svo í keilu á milli...
    Gaman þegar þú setur myndir inn, endilega að koma með fleiri.
    :-)pabbs

    ReplyDelete
  11. Hey frænka

    gaman að sjá fréttir - ég vil bara meira... komdu nú með eitt blogg í viðbót. frábært að vera komin í e-ð sport, ég get sagt þér að það er stærsti gallinn á svona óléttuástandi - að geta ekki púlað! hlaupum við svo ekki öll í rvk maraþoni næsta sumar, kannski bara 21km!?

    knús og kossar

    ReplyDelete